Ábyrg framtíð
Frambjóðendur flokksins
Einungis frambjóðendur sem að hafa svarað kosningaprófinu birtast hér að neðan.
Reykjavíkurkjördæmi norður
Hvers vegna ættu kjósendur að greiða flokknum atkvæði sitt?
Ef fólk vill sjá breytingar, þá verður það að kjósa eitthvað nýtt. Boðskapur okkar er einfaldur, ein stefna í öllum málum. Öllu valdi þarf að fylgja ábyrgð. Aldrei í sögunni hafa yfirvöld tekið sér eins mikið vald eins og á kóvidtímanum, og því er afar mikilvægt að aðgerðir þeirra sé rýndar svo ábyrgð fylgi þessari sjálftöku valds. Ef það verður ekki gert verður komið fordæmi fyrir ótakmörkuðu ábyrgðarlausu valdi sem gripið verður til í framtiðinni.
Hvernig sér flokkurinn Ísland eftir 10 ár?
Opið ábyrgt samfélag, velmegunar, með öflugu heilbrigðiskerfi og skólakerfi og samgönguvandan leystan á ódýran hraðan hátt án þess að fara í rándýr puntverkefni sem kalla á tollhið í ártúnsbrekkunni. Ég vil sjá reykavíkurflugvöll endurbættan með aukni millilandaflugi. Ég vil sjá fasteignaverð aftur lækka til fyrra horfs (um helming) með hraðri uppbyggingu úthverfa. Ég vil einnig sjá heilbrigða þjóð sem lærði kovidlexíuna og er staðföst um að endurtaka þenan tíma aldreir aldrei aftur.
Með hvaða flokkum viljið þið helst vinna á Alþingi?
Við getum unnið með felstum flokkum. Okkar aðalmál að raunverulegt uppgjör eigi sér stað á covidtímanum á sér hljómgrunn víða. Með þátttöku okkar myndum við þrýsta á að sérhvert slíkt uppgjör yrði gagnsætt. Þannig að lexían sem menn læri verði raunveruleg.
Með hvaða flokkum ættuð þið erfiðast með að vinna með á Alþingi?
Við getum unnið með felstum flokkum. Okkar aðalmál að raunverulegt uppgjör eigi sér stað á covidtímanum á sér hljómgrunn víða. Með þátttöku okkar myndum við þrýsta á að sérhvert slíkt uppgjör yrði gagnsætt. Þannig að lexían sem menn læri verði raunveruleg.
Sumir leika sér að því að stilla flokkum upp á vinstri-hægri ás. Hvar á ásnum viljið þið staðsetja flokkinn ykkar?
Viljum gegnumgangandi valdefla fólk með aukinni samkeppni á felstum sviðum sem ríkið er nú með einokun á, og aðstöðu til að þvinga fólk í eina gegun þjónustu óháð gæðum. Með samkeppin og að fjárstuðningu fylgi einstaklingum en ekki stofnuninni munum við vinna að því að bæta þjonustuna. Við vilijum almennt lækka skatta á alla gegnum ráðdeild og skynsemlegri fjárfestingar. Þetta staðsetur okkur hægra megin við miðju.
Svör í kosningaprófinu:
Ábyrg framtíð
Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.
- Y
Svona svarar Y:
Mikil þöggun ríkir nú um stöðu bóluefnaskaðaðra, og yfirvöld hafa aðeins viðurkennt 7 tilfelli skaðbótaskyld. Fjöldi skaðaðra gæti þó hlaupið á tugum þúsunda. Ólíklegt er að nokkurn tíman í sögunni hafi verið birtar jafn margar skýrslur um eitivirkni nokkurs lyfs.
Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.
- Y
Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.
- Y
Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.
- Y
Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.
- Y
Svona svarar Y:
Borgarlínan mun fasteignaþróunarverkefni sem átt hefur þátt í því að halda fasteignaverði háu með að beina uppbyggingu bara að dýrustu svæðum borgarinnar. Miklir hagsmunur er með því að fasteignaverð haldist sem hæst. Ef yfirvöld vildu raunverulega borgarlínu, þá væri hún löngu komin. Það þarf ekki annað en strætó sem keyrir tíðar. Slík samgöngulausn er ekki margra áratuga verkefni.
Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.
- Y
Svona svarar Y:
Herlausar þjóðir eiga aldrei að taka þátt í stríðum.
Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
- Y
Svona svarar Y:
VIð viljum að fé fylgi sjúklingi, þannig að sjúklingar séu ekki bundnir ákvörðun búrókrata hvaða lækninga þeir megi leita. Opinbert fé er takmarkað. Ef draga á úr kostnaðarþátttöku mun það þýða að búrókratinn mun reyna að takmarka aðgengi að nauðsynlegri þjónustu (ef hún er of dýr)
Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.
- Y
Svona svarar Y:
Það á aldrei að breyta skattkerfinu í vopn í stríði milli stétta. Öll mismunun mun leiða til undanskota. Skattkerfið þarf að vera einfallt og gagnsætt, það mun gagnast öflum og hvetja alla til aukinnar tekjuöflunar og hagsældar.
Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.
Svona svarar Y:
Háð því hvað um ræðir. Gjald þarf alla vega að dekka alla opoinbera þjónustu gengd nýtingunn.
Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.
- Y
Svona svarar Y:
Ísland er herlaus þjóð. Við eigum ekki að skipta okkur að erlendum stríðsátökum. Þetta á líka við um að reka áróður fyrir stríði á erlendri grundu. Mjög óheppilegt er að ísland hafi gert það um árabil.
Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
- Y
Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.
- Y
Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.
- Y
Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.
- Y
Svona svarar Y:
Mjög mikilvægt Yfirvöld gengu það langt fram í sóttvarnaraðgerðum að mjög sársaukafullt rifja það upp. Mikilvægum upplýsingum var haldið frá almenningi. Lög voru brotin, og stjórnarskráin er mjög veik eftir þetta tímabil. Veruleg hætta er á að fordæmi sé komið fyrir jafnvel enn harðari aðgerðum næst. Gríðarlegar upphæðir töpuðust úr hagkerfinu, og stærstu hluti núverandi vandamála má án efa rekja til þess.Stærsta váin snýr að lýðheilsu þjóðarinnar og tugþúsundir gætu verið í hættu.
Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.
- Y
Svona svarar Y:
Auðvitað á að reyna að gera allt sem hægt er fyrir gindvíkinga, en bærinn er í dag hættulegt svæði og gæti endað undir hrauni. Fram að því að gosi lýkur þarf að taka tillit til þess og lágmarka kostnað þar sem hægt er. Því fé er betur varið í að styðja Grindvíkinag að fá heimili annars staðar.
Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.
- Y
Svona svarar Y:
Þetta á að vega nokkuð jafnt. Annars er auðvelt að stöðva allar freamkæmvdir.
Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
- Y
Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.
- Y
Svona svarar Y:
Veggjöld eru í lagi, en aðeins ef notendur eru rukkaðir
Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.
- Y
Svona svarar Y:
Sammála, en með ákveðnar efasemdir ef of hratt er farið í vindmilluvirkjunum. Ekki er komin nein reynsla á þær hér og því þarf a byrja hægt.
Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.
- Y
Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.
- Y
Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?
- 1
- Y2
- 3
- 4
- 5
Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?
- 1
- Y2
- 3
- 4
- 5
Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?
- 1
- Y2
- 3
- 4
- 5
Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?
- 1
- 2
- Y3
- 4
- 5
Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- 3
- Y4
- 5
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Ábyrg framtíð svaraði:
- Heilbrigðismál
- Orkuöflun og orkuöryggi
- Vextir og verðbólga
Svona svarar Y:
Vantar að nefna uppgjör kófsins. Vegna þeirrar þöggunar sem átt hefur sér stað er mikilvægt að allt komi upp á yfirborðið.