Flokkur fólksins
Frambjóðendur flokksins
Einungis frambjóðendur sem að hafa svarað kosningaprófinu birtast hér að neðan.
Reykjavíkurkjördæmi norður
Hvers vegna ættu kjósendur að greiða flokknum atkvæði sitt?
Við erum hrein og bein. Við þiggjum enga styrki og við erum algjörlega óspillt. Við erum að berjast fyrir börnin okkar og fátæka. Ef að þú, kjósandi góður, vilt hjálpa okkur í baráttunni gegn fátækt þá seturu X við F.
Hvernig sér flokkurinn Ísland eftir 10 ár?
Við sjáum Ísland eftir 10 ár þannig að það sé búið að ná efnahagslegum stöðugleika og að allir hafi fæði, klæði, húsnæði og heilbrigðisþjónustu - ef Flokkur fólksins hefur umboð til að koma okkar breytingum í gegn.
Með hvaða flokkum viljið þið helst vinna á Alþingi?
Við getum starfað með þeim flokkum sem vilja taka utan um málefni okkar um að útrýma fátækt.
Með hvaða flokkum ættuð þið erfiðast með að vinna með á Alþingi?
Við getum ekki unnið með flokkum sem vinna fyrir sérhagsmunum og hunsa velferð fólksins.
Sumir leika sér að því að stilla flokkum upp á vinstri-hægri ás. Hvar á ásnum viljið þið staðsetja flokkinn ykkar?
Flokkur fólksins hefur hingað til ekki stillt sér upp á pólítískan ás, heldur er Flokkur fólksins flokkur um málefnin sem við berjumst fyrir. Við látum aðra um að stilla okkur upp á þessa ása, en við erum fyrst og fremst flokkur málefnanna okkar.
Svör í kosningaprófinu:
Flokkur fólksins
Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.
- F
Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.
- F
Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.
- F
Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.
- F
Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.
- F
Svona svarar F:
Við styðjum við Samgöngusáttmála að Borgarlínunni undanskilinni.
Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.
- F
Svona svarar F:
Við viljum styðja Úkraínu, sem vopnlaus þjóð með borgaralegum hætti.
Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
- F
Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.
- F
Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.
- F
Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.
Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
- F
Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.
- F
Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.
- F
Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.
Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.
- F
Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.
- F
Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
- F
Svona svarar F:
Við viljum ekki fara í ESB en við erum opin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum.
Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.
- F
Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.
- F
Svona svarar F:
Við erum mjög hlynnt því að virkja meira, en við erum ekki hlynnt vindmyllugörðum. Við viljum tryggja forgangsorku til heimilanna á sanngjörnu verði. Auk þess þarf að huga að uppbyggingu flutningskerfa.
Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.
- F
Svona svarar F:
Einfalda þarf regluverk og skipulagsferla, en ekki á kostnað gæða og aðgengis.
Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.
- F
Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?
- 1
- 2
- 3
- F4
- 5
Svona svarar F:
Við viljum hækka bankaskatt og auðlindagjöld á stórútgerðina.
Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?
- 1
- F2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar F:
Við viljum hætta að skattleggja tekjur undir 450.000 kr.
Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar F:
Það er ekki hægt að meta til fjár að fólk sem kemur hingað lærir íslensku og aðlagist samfélaginu. Við erum flokkur sem berst gegn fátækt og félagslegri einangrun, og við setjum ekki verðmiða á það.
Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?
- 1
- 2
- 3
- F4
- 5
Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- F3
- 4
- 5
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Flokkur fólksins svaraði:
- Heilbrigðismál
- Húsnæðismál
- Vextir og verðbólga