Sjálfstæðisflokkur
Frambjóðendur flokksins
Einungis frambjóðendur sem að hafa svarað kosningaprófinu birtast hér að neðan.
Reykjavík
Svör í kosningaprófinu:
Sjálfstæðisflokkur
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Í Hafnarfirði er einstakur bæjarbragur sem gerir bæinn að þeim besta á Íslandi. Samkvæmt þjónustukönnunum hefur ánægja bæjarbúa farið stöðugt vaxandi á síðustu árum sem segir mikið til um viðhorf bæjarbúa til Hafnarfjarðar.
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Samkvæmt könnun á þjónustu sveitarfélaga er Hafnarfjörður í öðru sæti yfir sveitarfélög á Íslandi. Bærinn mælist yfir meðaltali í öllum flokkum og er til dæmis efstur í menningarmálum.
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- D2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Við höfum lagt mikla áherslu á að lækka álagningu fasteignagjalda til að þau hækki ekki umfram verðbólgu að meðaltali. Það hefur tekist og skilar árlega 3,7 milljörðum í sparnað til íbúa og fyrirtækja bæjarins. Á næsta kjörtímabili stefnum við að því að halda áfram að lækka útsvar.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Báðir kostir eru mikilvægir, við höfum lagt og munum áfram leggja mikla áherslu á jafnt og gott framboð af nýju húsnæði, bæði í sérbýli og fjölbýli. Lóðaverð er það lægsta á höfuðborgarsvæðinu og það hefur tryggt okkur gott framboð af íbúðum fyrir fyrstu kaupendur.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- D
Svona svarar D:
Íbúakosningar ættu aðeins að fara fram um stærri mál. Bæjarstjórn er kjörinn til að taka ákvarðanir fyrir hönd bæjarbúa og er það kjarni þess fulltrúalýðræðis sem við höfum valið okkur að viðhafa. Kjörnir fulltrúar hafa þann tíma og aðstoð sem þarf til að setja sig inn í mál, stór og smá og geta því tekið flestar ákvarðanir sem ekki eru umdeildar eða mjög stórar.
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- D
Svona svarar D:
Markmið okkar er að bjóða öllum börnum leikskólavist frá 12 mánaða aldri, í haust munu foreldrar allra 14 mánaða barna fá boð um vist. Ef skylda á sveitarfélög til að veita þessa þjónustu er ljóst að tekjustofnar þurfa að fylgja með þeirri ákvörðun
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Hafnarfjörður er nú þegar með heimgreiðslur og markmið okkar er að auka þær í 250.000 kr á mánuði. Það ætti að vera val foreldra að þiggja heimgreiðslur með barni til tveggja ára aldurs ef þau kjósa það fremur en leikskólavist.
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Þessi möguleiki er nú þegar í boði í Hafnarfirði og við teljum að þetta sé góður kostur fyrir alla, foreldra, börnin og Hafnarfjörð.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Reynslan af einkareknum skólum er mjög góð í Hafnarfirði, við viljum skoða þennan möguleika enn frekar.
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- D
Svona svarar D:
Hafnarfjörður hefur verið í fararbroddi í þessum málaflokki og styður við íþrótta- og tómstundastarf með margvíslegum hætti. íbúar eru ánægðir með þessa starfsemi og við munum gæta þess að efla þessa samvinnu enn frekar.
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt í þjónustukönnunum er Hafnarfjörður í fyrsta sæti meðal sveitarfélaga þegar spurt er um menningarmál. Við viljum gera enn betur og breyta íþróttahúsinu við Strandgötu í menningarhús þegar ný íþróttamiðstöð í Hamranesi verður risin og íþróttastarf í húsinu flyst þangað.
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- D
Svona svarar D:
Það er mikilvægt að sinna vel öllum börnum sem dvelja í sveitarfélaginu. Þegar kemur að hælisleitendum skiptir gríðarlega miklu máli að afgreiða umsóknir hraðar. Álagið sem Hafnarfjörður þurfti að þola þegar þeir voru flestir í bænum var alltof mikið. Seinagangur í afgreiðslu er kostnaðarsamur fyrir ríkissjóð og skapar óþarfa álag á innviði bæjarins. Hér þarf Útlendingastofnun að standa sig betur.
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Við leggjum mikla áherslu á öfluga nærþjónustu og bæði snjómokstur og götusópun hafa verið stóraukin á síðustu árum. Þessi þjónusta er mikilvæg og við munum áfram sinna henni vel.
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Sértækar ívilnanir eru ekki skynsamlegar. Miklu betra er að hafa almenn skilyrði, kröfur og gjöld eins hagfelld og mögulegt er og þjónusta bæði rótgróin og ný fyrirtæki sem allra best.
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- D
Svona svarar D:
Fjárhagsaðstoð er neyðarúrræði og Hafnarfjörður sinnir skyldum sínum þar eins og önnur sveitarfélög. Það er mun mikilvægara að atvinnulífið sé öflugt og að allir sem geta finni vinnu við hæfi. Þeir sem eru óvinnufærir þurfa að komast í varanleg úrræði eins og örorku.
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Sundlaugar eru ein vinsælasta afþreying og þjónusta sem sveitarfélagið býður uppá. Við höfum lengt opnunartíma og viljum lengja hann enn frekar.
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- D
Svona svarar D:
Fyrirtæki í sorphirðu geta flokkað meira en gert er í dag en sjálfsagt er að flokka pappa og plast frá öðru sorpi.
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Hafnarfjörður er stöðugt að bæta þjónustu við eldri borgara eftir því sem þeim fjölgar. Því fylgir eðlilega meira fé úr bæjarsjóði.
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Hafnarfjörður greiðir eldri borgurum nú þegar frístundastyrk og hefur það gefist vel.
Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- D
Svona svarar D:
Þær vegabætur sem kveðið er á um í samgöngusáttmálanum eru mjög mikilvægar fyrir Hafnarfjörð og vegna þeirra höfum við stutt hann. Mikilvægast þar er að leysa kaflann frá Lækjargötu að Kaplakrika og að bæta stígakerfið eins og gert hefur verið gert í bænum á síðustu árum.
Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
- D
Svona svarar D:
Bættar almenningssamgöngur eru mikilvægar en það lítur út fyrir að borgarlínan verði ekki verða kláruð í óbreyttri mynd.
Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Alls ekki, almenn umferð mun aukast þrátt fyrir bættar almenningssamgöngur, það er því fráleitt að fækka akreinum til að rýma fyrir borgarlínu. Við sjálfstæðismenn höfum lagt mikla áherslu á það í gegnum árin.
Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Já, fjölskyldubíllinn er mikilvægasta samgöngutækið, við munum áfram gera ráð fyrir honum í Hafnarfirði og tryggja bæði bílastæði og gatnakerfi sem fullnægir þörfum fólks.
Það eru of margir einkabílar í umferðinni.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Fjölskyldubíllinn er sá samgöngumáti sem flestir kjósa. Það þarf að gera ráð fyrir því að svo verði áfram og engin ástæða til að hamla fjölda þeirra.
Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.
- D
Svona svarar D:
Mjög mikilvægt Slíkt stjórnlyndi er ekki til eftirbreytni og skerðir lífsgæði fólks án fullnægjandi raka.
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Sjálfstæðisflokkur svaraði:
- Málefni eldri borgara
- Málefni leik- og grunnskóla
- Samgöngumál