Viðreisn
Frambjóðendur flokksins
Einungis frambjóðendur sem að hafa svarað kosningaprófinu birtast hér að neðan.
Reykjavík
Svör í kosningaprófinu:
Viðreisn
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Í Kópavogi er sterkt og fjölbreytt samfélag með gríðarlega öflugu og metnaðarfullu íþrótta- og tómstundastarfi. Kópavogur hefur alla burði til þess að verða framúrskarandi sveitarfélag með því að hlúa betur að grunnþjónustu og mæta betur þörfum fjölskyldufólks.
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Viðreisn í Kópavogi telur nauðsynlegt að verja meira fjármagni í að sinna lögbundnum skyldum sínum. Biðlistar innan velferðarsviðs eru langir og börn og einstaklingar með fötlun fá ekki þá aðstoð sem þau eiga rétt á.
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- C2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Viðreisn í Kópavogi mun leita allra leiða til þess að lækka álögur á bæjarbúa, sér í lagi barnafjölskyldna. Við ætlum að lækka leikskólagjöld og tryggja að betur sé farið með fjármuni til þess að geta sinnt grunnþjónustu við bæjarbúa.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn telur ákjósanlegt að á næstu einu til tveimur kjörtímabilum verði lögð áhersla á uppbyggingu í Vatnsendahvarfi og Vatnsendahlíð. Á sama tíma verður einnig að skoða skynsamlega uppbyggingu innan eldri hverfa.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn vill viðhafa virkt samráð við bæjarbúa. Samráð skal vera raunverulegt. Gera skal grein fyrir niðurstöðum að loknu samráði og rökstuðningur fyrir ákvörðunum og stefnum skal gefinn. Viðreisn vill þó einnig nýta vettvanginn Okkar Kópavogur til þess að eiga í nánara samtali við bæjarbúa um fjölbreyttari málefni.
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn telur ekki tímabært að lögfesta rétt barna til leikskólavistar frá 12 mánaða aldri á þessum tímapunkti, m.t.t. þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu varðandi húsakost leikskólanna og kennaraskorts. Til þess að mæta þeim hópi fjölskyldna sem ekki fá úthlutað leikskólaplássi við 12 mánaða aldur vill Viðreisn auka niðurgreiðslur vegna annarra dagvistunarúrræða þegar börn hafa náð 12 mánaða aldri og bíða eftir leikskólaplássi.
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn er ekki hlynnt heimgreiðslum. Heimgreiðslur eru ekki framhald af fæðingarorlofi heldur styrkur sem þýðir að mikilvæg réttindi tapast, t.d. veikindaréttur og réttur til fæðingarorlofs. Heimgreiðslur stuðla ekki að raunverulegu vali foreldra að vera lengur heima með barninu sínu. Með því að gefa heimgreiðslum aukið vægi er dregið úr atvinnuþátttöku kvenna, tekjumunur kynjanna eykst og staða kvenna veikist. Þá mun slíkt kerfi draga úr þrýstingi á að byggja upp gott leikskólakerfi.
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Viðreisn í Kópavogi treystir foreldrum til að ákveða sjálf vistunartíma sinna barna. Við eigum að tryggja að starfsumhverfi leikskólakennara og starfsfólks leikskóla sé aðlaðandi og jákvætt. Við teljum afar brýnt að gera breytingar á gjaldskrá leikskóla bæjarins þannig að hún sé sanngjörn. Hvatakerfi þar sem fólk fær eðlilegan afslátt af gjöldum vegna styttri vistunartíma er jákvætt. Kerfi sem í raun þvingar foreldra til þess að draga úr vistunartíma, líkt og Kópavogsmódelið gerir, þykir okkur neikvætt.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- C
Svona svarar C:
Viðreisn vill efla sjálfstæði leik- og grunnskólanna. Við styðjum við fjölbreytt rekstrarform í menntakerfinu og erum opin fyrir samstarfi við þá einkaaðila sem hafa hug á því að hefja rekstur innan menntakerfisins. Áður en farið er í samstarf við einkaaðila við uppbyggingu innviða innan bæjarins skal fara í útboð á þeirri þjónustu sem um ræðir til þess að tryggja gagnsæi og gæði.
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Viðreisn vill nýta fjármagn bæjarins skynsamlega. Séu forsendur fyrir því teljum við að auka ætti niðurgreiðslu bæjarins til íþrótta- og tómstundaiðkunar barna meira en nú er gert, t.d. með því að tryggja betri þjónustu frístundavagnsins. Einnig höfum við hug á að skoða tekjutengingu frístundastyrks, til þess að tryggja betur aðgengi barna frá tekjulágum heimilum að íþrótta- og tómstundastarfi bæjarins.
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn vill öflugt og líflegt menningarlíf í Kópavogsbæ. Halda á stuðningi bæjarins við menningarlíf í svipuðum upphæðum en skoða þarf vel hverning þeim pening er ráðstafað. Við viljum að bærinn styðji við menningarlíf bæjarins og að skoðað verði að setja á fót bæjarhátíð í Kópavogi í samstarfi við einkaaðila.
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn telur gríðarlega mikilvægt að hælisleitendur á barnsaldri fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar, þ.e. þá þjónustu og þann stuðning sem þau þurfa. Börn sem koma til landsins og sækja um alþjóðlega vernd þarf að grípa vel til þess að tryggja að þau aðlagist íslensku samfélagi sem best.
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- C
Svona svarar C:
Starfsfólk Kópavogsbæjar og Áhaldahússins hefur sinnt snjómokstri og götusópun af stakri prýði og eiga hrós skilið.
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
- C
Svona svarar C:
Viðreisn í Kópavogi telur ekki tækt að nota fjárhagslegar ívilnanir til þess að greiða leið fyrirtækja og reksturs inn í bæinn. Við hinsvegar leggjum áherslu á að einfalda ferlið og gera þjónustu við fyrirtækin skilvirkari.
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn í Kópavogi telur skynsamlegra að forgangsraða fjármunum með þeim hætti að tryggja hagkvæmara húsnæði fyrir tekjulægri hópa.
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Viðreisn vill lengja opnunartíma sundlauga um helgar og halda báðum sundlaugum opnum á almennum frídögum. Við höfum heyrt mikið ákall frá ungmennum í bænum sem vilja ólm komast í sund um kvöld og helgar.
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn telur að núverandi flokkunarkerfi hafi skilað árangri. Viðreisn leggur áherslu á að Kópavogsbær sé grænn og hreinn. Flokkunarkerfið er mikilvægur liður þar.
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn í Kópavogi telur mikilvægt að tryggja samþættingu og skilvikni í þjónustu við eldri borgara. Nauðsynlegt er að verja fjármunum með þeim hætti að verið sé að veita rétta þjónustu á réttum stað.
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- C
Svona svarar C:
Viðreisn í Kópavogi hefur á stefnuskrá sinni að koma á fót tekjutengdum frístundastyrk fyrir eldri borgara. Slíkt þykir okkur mikilvægt til þess að stuðla að bættri lýðheilsu og lífsgæðum eldri borgara. Fjárhagur eldri borgara er mjög misjafn og á ekki að vera fyrirstaða fyrir eldri borgara að stunda heilsueflandi hreyfingu.
Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Samgöngusáttmálinn er undirstaða þeirra vegamiklu og nauðsynlegu uppfærslna sem þurfa að verða á vegakerfi, almenningssamgöngum og hjólastíganeti höfuðborgarsvæðisins. Mikilvægt er að horfa á stóra samhengið og hugsa til framtíðarkynslóða um hvernig samfélag við viljum skilja eftir okkur. Viðreisn styður við samgöngusáttmálann.
Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
- C
Svona svarar C:
Mjög mikilvægt Fyrsti áfangi Borgarlínunnar mun raungerast í Kópavogi. Viðreisn telur mikilvægt að við hönnunarferli Borgarlínu um Borgarholtsbraut verði haft gott samráð við íbúa.
Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.
- C
Svona svarar C:
Meginmarkmið Samgöngusáttmálans er ekki að fækka akreinum fyrir almenna bílaumferð þar sem hægt er að komast hjá því heldur bæta við sérakreinum fyrir almenningssamgöngur þar sem við á. Viðreisn í Kópavogi er ósammála því að stefna eigi sérstaklega að því að fækka akreinum fyrir almenna bílaumferð til að gera pláss fyrir almenningssamgöngur og telur að skynsemi þurfi að ráða.
Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.
- C
Svona svarar C:
Við í Viðreisn viljum auka frelsi byggingaraðila til þess að ákveða sjálfir fjölda bílastæða við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Við viljum ekki leggja sérstakar kvaðir á fjölda bílastæða.
Það eru of margir einkabílar í umferðinni.
- C
Svona svarar C:
Núverandi innviðir bera ekki þá fjölgun einkabíla sem er að eiga sér stað. Nauðsynlegt er að leggja áherslu á uppbyggingu innviða til styðja við fjölbreytta ferðamáta og tryggja raunverulegt val fólks til að nýta þann samgöngumáta sem þeim hentar best.
Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.
- C
Svona svarar C:
Tryggja verður aðgengi almennings að þessu mikilvæga útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Gæta verður að öryggi vatnsbólsins og takmarka aðgengi bíla og þungaflutninga um svæðið.
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Viðreisn svaraði:
- Fjármál og rekstur sveitarfélagsins
- Húsnæðismál
- Málefni leik- og grunnskóla