D

Sjálfstæðismenn og óháðir

Frambjóðendur flokksins

Einungis frambjóðendur sem að hafa svarað kosningaprófinu birtast hér að neðan.

Reykjavík

    Svör í kosningaprófinu:

    Sjálfstæðismenn og óháðir

    Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. D
      Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Það er einstaklega gott að búa í Sveitarfélaginu Vogum. Hér er frábært samfélag og mikil nálægð við náttúruna.

    Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?

    1. 1
    2. D
      2
    3. 3
    4. 4
    5. 5

    Svona svarar D:
    Skattar hafa verði lækkaðir á kjörtímabilinu, þ.e. fasteignaskattar í íbúðarhúsnæði og við erum á mun betri stað en í upphafi síðasta kjörtímabils. Það er hinsvegar mikilvægt horfa til þess að aðstæður í sveitarfélaginu og fjárhagur er að batna og því eru tækifæri til að halda áfram lækkun skatta og gjalda.

    Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Það er mikilvægt að leita í auknum mæli eftir afstöðu íbúa til málefna sveitarfélagsins, eftir atvikum með íbúakönnunum eða íbúafundum.

    Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.

    1. Mjög ósammála
    2. D
      Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Sveitarfélög ættu ávallt að leitast við að bjóða leikskólapláss fyrir 12 mánaða aldur, sér í lagi á meðan fæðingarorlof er einungis 12 mánuðir. Ríkið ætti þó ekki að skylda sveitarfélög til þess heldur frekar skapa aðstæður svo það sé hægt, m.a. með endurgreiðslu á vsk af uppbyggingu leikskóla.

    Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. D
      Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Við gerum það í dag og munum halda því áfram. Við leggjum ennfremur til að heimgreiðslur fyrir börn 18 mánaða og eldri hækki, sér í lagi þegar skortur er á leikskólaplássi fyrir þann aldurshóp.

    Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. D
      Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    VIð ætlum að innleiða Vogamódelið sem gerir ráð fyrir 30 klst gjaldfrjálsri leikskólavist, þar sem er skýr hvati til að stytta vistunartíma barna og skapar svigrúm til að auka gæði í leikskólastarfi.

    Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Við í D-listanum ætlum að skoða möguleika á útvistun verkefna sveitarfélagsins þegar getur lækkað kostnað og/eða aukið gæði þjónustunnar, án þess að slaka á eftirliti sveitarfélagsins. Á það líka við í leikskólamálum.

    Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Í Vogum hefur frístundastyrkur verið hækkaður umtalsvert (um 18%) á milli ára og erum við nokkuð sambærileg öðrum sveitarfélögum af svipaðri stærð. Við eigum að halda áfram að tryggja að frístundastyrkur haldi verðgildi sínu og kostnaður verði ekki hindrun fyrir íþrótta- og tómstundaiðkun barna. Áhersla þar hins vegar að vera á ferðakostnað vegna íþrótta- og tómstundaiðkun barna og ungmenna sem er töluverður og verður leitast við koma til móts þann kostnað með innleiðingu frístundarútu

    Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Við þurfum að bjóða upp á mun betri aðstöðu til menningarstarfs í sveitarfélaginu og stuðla að fleiri menningartengdum viðburðum.

    Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga
    Ath
    Sjálfstæðismenn og óháðir sleppti þessari fullyrðingu

    Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.

    1. Mjög ósammála
    2. D
      Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Tekin hafa verið mikilvæg skref í átt að bættri þjónustu og hefur þjónustustig hækkað mikið á kjörtímabilinu. Það skortir hins vegar verulega á bættan snjómokstur á Vatnsleysustrandarvegi en sá vegur í umsjón Vegagerðarinnar.

    Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Við leggjum áherslu á að lækka fasteignaskatt á fyrirtæki til að hvetja fyrirtæki til að hefja starfsemi í sveitarfélaginu.

    Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga
    Ath
    Sjálfstæðismenn og óháðir sleppti þessari fullyrðingu

    Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.

    1. Mjög ósammála
    2. D
      Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Opnunartími sundlaugar í sveitarfélaginu sambærilegur og í nágrannasveitarfélögum. Það er mikilvægt að halda þeim opnunartíma og skerða hann ekki.

    Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.

    1. Mjög ósammála
    2. D
      Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. D
      Nokkuð góð tillaga
    4. Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Við teljum mikilvægt að tryggja aukna akstursþjónustu til eldri borgara svo þeir geti fengið akstur bæði inn í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðið. Þá þarf að lækka kostnað eldri borgara við frístundaiðkun til að stuðla að aukinni þátttöku.

    Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.

    1. Mjög ósammála
    2. Frekar slæm tillaga
    3. Nokkuð góð tillaga
    4. D
      Mjög góð tillaga

    Svona svarar D:
    Boðið er upp á frístundastyrk til eldri borgara og leggjum við til að hægt sé að nýta hann betur.

    Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

    Sjálfstæðismenn og óháðir svaraði:

    • Atvinnumál
    • Fjármál og rekstur sveitarfélagsins
    • Málefni leik- og grunnskóla