Andrés Ingi Jónsson (3. sæti - Reykjavíkurkjördæmi norður)

Fáein orð um þig.

Ég er Ölfusingur sem bý með fjölskyldunni minni í Laugardalnum í Reykjavík. Elska græn stjórnmál, róttækar raddir og karókí.

Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?

1979

Í hvaða sveitarfélagi býrð þú?

Reykjavík

Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?

Íslandi

Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?

Ensku, þýsku og hrafl í dönsku og frönsku.

Við hvað starfar þú?

Þingmaður

Í hvers konar húsnæði býrð þú?

Við hjónin eigum raðhús

Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?

Meistaragráða í alþjóðasamskiptum

Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?

Síðan 2021

Hvernig á Ísland að vera eftir 10 ár?

Ennþá betra en í dag. Samfélag í sátt við náttúruna – og þar með á góðri leið að ná öllum markmiðum í loftslagsmálum – þar sem öllum er frjálst að vera þau sem þau eru.

Hver er þín fyrirmynd í pólitík?

Samtök um kvennalista. Þær mættu á pólitíska sviðið til að hrista upp í því og náðu fram varanlegum breytingum með því að setja á dagskrá mál sem höfðu ekki verið rædd innan stjórnmálanna fram að því.

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?

Svo margt! En ef mig langar í feel good nostalgíukast set ég In Sides með Orbital undir nálina.

Hver er þín eftirlætis bók?

Það situr ennþá í mér myndin sem er teiknuð upp í Tsjernobyl-bæninni eftir Svetlönu Aleksíevítsj, hvernig hún dregur fram fólkið á bakvið hamfarir sem annars virka svo fjarlægar.

Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?

Back to the Future. Frábær blanda af hasar, fjöri og prakkaraskap – sem kennir okkur líka langtímahugsun.

Hvert er eftirlætisáhugamálið þitt?

Eftir að fjölskyldan flutti aftur til Íslands höfum við hægt og bítandi reynt að prófa eins margar sundlaugar og við getum. Hvort sem það flokkast sem áhugamál, þá þætti mér gaman að ná einhvern tímann að tékka á þeim öllum.

Svör við kosningaprófinu:

Andrés Ingi Jónsson

Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Andrés Ingi Jónsson
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.

  1. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.

  1. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.

  1. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Andrés Ingi Jónsson
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.

  1. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.

  1. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Andrés Ingi Jónsson
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Andrés Ingi Jónsson
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.

  1. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.

  1. Mjög ósammála
  2. Andrés Ingi Jónsson
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.

  1. Mjög ósammála
  2. Andrés Ingi Jónsson
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Andrés Ingi Jónsson:
Það er sjálfsagt að skoða leiðir til að flýta ferlum í kringum uppbyggingu húsnæðis, en regluverk og kröfur sem snúa að því að húsnæði sé heilnæmt og af ákveðnum gæðum mega ekki vera fórnarlömb í þeirri vinnu.

Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Andrés Ingi Jónsson
    Mjög góð tillaga

Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. Andrés Ingi Jónsson
    4
  5. 5

Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. Andrés Ingi Jónsson
    3
  4. 4
  5. 5

Svona svarar Andrés Ingi Jónsson:
Staða fólks er mjög ólík. Sumir hópar samfélagsins leggja allt of lítið til samneyslunnar og eðlilegt að hækka skatta á þá, af öðrum þarf að létta byrðum.

Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. Andrés Ingi Jónsson
    4
  5. 5

Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. Andrés Ingi Jónsson
    4
  5. 5

Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. Andrés Ingi Jónsson
    3
  4. 4
  5. 5

Svona svarar Andrés Ingi Jónsson:
Það er eðlilegt að þróa kerfi áfengissölu frá því sem er, en eins og með önnur vímuefni þarf sala að vera samkvæmt ákveðnum skaðaminnkandi reglum.

Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

Andrés Ingi Jónsson svaraði:

  • Húsnæðismál
  • Jafnrétti og mannréttindi
  • Umhverfis- og loftslagsmál