Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir (4. sæti - Reykjavík)
Fáein orð um þig.
Ég er mikil fjölskyldumanneskja enda bæði mamma og amma, en í grunninn er ég sveitastelpa og bý að öllu því sem ég lærði í sveitinni þar sem nýtni og nægjusemi skipti máli auk góðrar tengingar við náttúruna. Ég hef reynslu af fátækt, fötlun og félagslegri einangrun ásamt fjölbreyttri starfsreynslu sem nýtist mér og minni sterku réttlætiskennd vel í baráttunni fyrir betra samfélagi.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1966
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku og sænsku vel en skil fleiri tungumál.
Við hvað starfar þú?
Sem fyrsti varaborgarfulltrúi eins og er en vann sem skrifstofustjóri og viðurkenndur bókari þar á undan.
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Einbýli á Kjalarnesi en bjó í 23 ár í blokk í Breiðholti.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Skrifstofutækninám og gráða atvinnuráðuneytis sem viðurkenndur bókari.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Núverandi framboð er nýtt samstarf tveggja hreyfinga sem sameinar vinstri sinnaða borgara og gefur okkur vægi til góðra verka.
Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?
Þjónustulipurt sveitarfélag sem leyfir borgurum sínum að blómstra (virðir mannréttindi) af því að þar sem fólki líður vel, þar vill það eiga heima. Eftir 10 ár vil ég að við getum öll verið stolt af okkar eigin Reykjavík 😎
Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?
Grímsnes og Grafningshreppur kæmi til greina.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Sanna Magdalena Mörtudóttir. Hef þekkt hana í 10 ár og eftir að hafa starfað með henni síðustu 8 árin get ég sagt með góðri samvisku sagt að hún er harðdugleg, heiðarleg og samkvæm sjálfri sér.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Enginn einn. Ég hrífst af hinu alþýðlega og mannlega í lögum Mugison og Bubba, því blíða í söng Bríetar og Soffíu og elska húmor Ljótu hálfvitanna. Hlusta einnig mikið á gamlan amerískan blús og gamaldags kántrý.
Hver er þín eftirlætisbók?
Látum Psmith leysa vandann eftir PG Woodhouse kemur mér alltaf til að hlæja.
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Allar spennu og ævintýramyndir sem hafa húmor og eru án gervigreindaratriða.
Hvert er þitt aðaláhugamál?
Að gera heiminn að betri stað. Útilegur, jeppamennska, söngur, föndur, barnabörnin - ég bara get ekki gert upp á milli.
Svör við kosningaprófinu:
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Reykjavík er svo skemmtilega fjölbreytt borg.
Allt frá iðandi miðbæjarlífinu, hverfunum sem einkennast af byggingarstíl hvers tíma, vel skipulögðum úthverfunum og svo frelsi þess að geta búið í sveit í borg í ysta hverfi borgarinnar, á Kjalarnesi.
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Ég er nokkuð ánægð með þjónustuna en er með tillögur til að bæta hana enn frekar.
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir3
- 4
- 5
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Óbreytt uns ALLIR leggja sitt af mörkum, þá getum við lækkað.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Þétting getur verið skynsamlegur kostur til að nýta innviði sem fyrir eru eins og t.d. á Kjalarnesi en þétting má ekki verða of mikil og ekki á kostnað grænna svæða.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Vinna þarf meira með íbúum og í þágu íbúa, íbúakosningar er ein leið til þess en ekki sú eina.
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Leikskólavist ætti vissulega að vera í boði frá 12 mánaða aldri fyrir alla þá sem þurfa á því að halda en ekki sem skylda.
Ég myndi vilja sjá fæðingarorlofið lengt þannig að foreldrar eigi val.
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Í fullkomnum heimi væri svarið já og ég myndi svo gjarnan vilja segja já, en við erum ekki komin þangað og þess vegna ber okkur að forgangsraða þeim fjármunum sem við höfum.
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Hvatningin má gjarnan vera til staðar en hún má ekki vera á kostnað þeirra sem ekki geta leyft sér slíka styttingu vegna erfiðra aðstæðna.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Börn ættu alltaf að fá bestu mögulegu þjónustu.
Útvistun sem býður einkaaðilum upp á að hagnast á kostnað þjónustu til að greiða sér arð frekar en að nýta féð til að bæta þjónustuna, hugnast mér einfaldlega ekki.
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Menning og listir eru samfélagsleg verðmæti.
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Sveitarfélögum ber skylda til að þjónusta öll börn innan sveitarfélagsins, það er ekki sveitarfélagsins (eða borgarfulltrúanna) að velja úr hópnum.
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Miðað við mína búsetu.
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Ég er til í að heyra rökin með og á móti en ég sé í fljótu bragði ekki að það sé mikið jafnræði í því.
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Við þurfum öll að geta lifað mannsæmandi lífi.
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Sund er heilsueflandi og fjölskylduvænt sport.
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Við eigum aðeins eina jörð, það skiptir máli hvernig við göngum um hana.
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Styðja þarf betur við félagsmiðstöðvar eldri borgara í eigin húsnæði.
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Hugsanlega gæti verið skilvirkara að styðja betur við félagsmiðstöðvar eldri borgara.
Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Lagt hefur verið af stað í vegferð með ráðandi stjórnvöldum og illa hægt að bakka út úr því í miðju kafi. Hins vegar eru þættir sem má breyta og bæta til að auðvelda umferð samhliða þessu verkefni.
Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Það má styðja betur við almenna umferð OG ljúka Borgarlínu á sama tíma.
Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Auðvitað myndi ég vilja halda þessum akreinum fyrir almenna umferð en það þarf að byggja upp nothæfar, hraðvirkar og öruggar almenningssamgöngur til að leysa hnútinn sem fer svo ört stækkandi.
Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Auðvitað.
Það eru of margir einkabílar í umferðinni.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Það er staðreynd sem blasir við alla virka morgna og aftur seinnipartinn - stressaðir bílstjórar í kappi við klukkuna, ein manneskja í hverjum bíl og langar bílaraðir sem silast áfram.
Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Vatnið okkar og hreinleiki þess er afar mikilvægt en það er útivist líka. Finna þarf leiðir til að þetta fari saman.
Hverfi Reykjavíkur njóta jafnræðis þegar kemur að þjónustu sem sveitarfélagið veitir.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Ég verð að miða við eigin búsetu en ég bý á Kjalarnesi, við Kjalnesingar getum því miður ekki tekið undir þetta hingað til.
Festa á svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum í sessi til framtíðar.
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Fyrst þarf að fá reynslu af notkun leiðarinnar, síðan er hægt að taka ákvarðanir um breytingar ef þarf.
Koma þarf í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Hætta á við fyrirhuguð Miklubrautargöng.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Nei - einkavæðing innviða er ekki í lagi.
Hinn almenni íbúi tapar alltaf á slíkum gjörningum.
Reykjavíkurflugvöllur á að vera í Vatnsmýri til frambúðar.
- Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Ég vil ekki missa flugvöllinn, það er mín persónulega skoðun að flugvöllurinn sé of mikilvæg tenging við landsbyggðina, enn sem komið er, til að mega missa sín.
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir svaraði:
- Húsnæðismál
- Málefni eldri borgara
- Málefni fatlaðs fólks
Svona svarar Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir:
Það sem snýr að íbúunum sjálfum er í fyrsta sæti í mínum huga, ég vil borg fyrir okkur öll.
Annað sem ég vil beita mér fyrir er fjölgun NPA samninga og P-merktra bílastæða.