Dagur B. Eggertsson (2. sæti - Reykjavíkurkjördæmi norður)
Fáein orð um þig.
Fjögurra barna faðir, læknir og fyrrv. borgarstjóri í Reykjavík. Giftur Örnu Dögg Einarsdóttir yfirlækni líknarlækninga á Landspítala. Byrjaði í stjórnmálum vegna áhuga á menntamálum og eflingu allra skólastiga. Hef helgað mig borgarmálum undanfarin ár og tel að það sé kominn tími á nýja ríkisstjórn og nýjar áherslur á Alþingi.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1972
Í hvaða sveitarfélagi býrð þú?
Reykjavík
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Osló í Noregi þar sem foreldrar mínir voru við nám.
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku, norsku og sænsku.
Við hvað starfar þú?
Borgarfulltrúi.
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Einbýlishúsi.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Ég er læknir og er með meistaragráðu í alþjóða mannréttindalögum.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Ég byrjaði í borgarstjórn sem óháður fulltrúi í Reykjavíkurlistanum. Ég gekk í Samfylkinguna árið 2005.
Hvernig á Ísland að vera eftir 10 ár?
Fjölbreytt og spennandi samfélag sem leggur áherslu á lífsgæði, velferð og jöfnuð, kraftmikið atvinnulíf og menningarmál.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lokkaði mig inn í pólitík og kenndi mér margt. Ég horfi til Gro Harlem Brundtland og Olof Palme sem fyrirmynda.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Björk Guðmundsdóttir og Smekk-leysukynslóðin ruddi brautina fyrir ótrúlegan fjölda íslensks tónlistarfólks og hljómsveita sem ég fylgist með og dýrka.
Hver er þín eftirlætis bók?
Veröld sem var, eftir Stefán Zweig, á sérstakan stað í hjarta mínu. Afi Gunnar kynnti mig fyrir henni einsog svo mörgu öðru.
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Cinema Paradiso. Annars er ég alæta á kvikmyndir.
Hvert er eftirlætisáhugamálið þitt?
Borgir. Góðar bækur, leikhús og bíó. Fara á tónleika. Hitta góða vini yfir góðum mat. Fótbolti. Og ég elska gufuböð.
Svör við kosningaprófinu:
Dagur B. Eggertsson
Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.
- Dagur B. Eggertsson
Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.
- Dagur B. Eggertsson
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Lykil verkefni í heilbrigðisþjónustu er að efla heilsugæslu og þjónustu við eldra fólk.
Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.
- Dagur B. Eggertsson
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Nám er samstarfsverkefni skólakerfisins og heimilanna.
Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.
- Dagur B. Eggertsson
Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.
- Dagur B. Eggertsson
Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.
- Dagur B. Eggertsson
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Ísland á að styðja við Úkraínu og eðlilegt er að hlusta eftir sjónarmiðum þeirra varðandi brýnustu þarfir.
Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
- Dagur B. Eggertsson
Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.
- Dagur B. Eggertsson
Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.
- Dagur B. Eggertsson
Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.
- Dagur B. Eggertsson
Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
- Dagur B. Eggertsson
Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.
- Dagur B. Eggertsson
Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.
- Dagur B. Eggertsson
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Ísland er eitt öruggasta og friðsældasta land í heimi og mikilvægt er að svo verði áfram.
Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.
- Dagur B. Eggertsson
Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.
- Dagur B. Eggertsson
Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.
- Dagur B. Eggertsson
Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
- Dagur B. Eggertsson
Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.
- Dagur B. Eggertsson
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Það þarf blandaða fjármögnun til að standa undir nauðsynlegu átaki í innviðauppbyggingu.
Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.
- Dagur B. Eggertsson
Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.
- Dagur B. Eggertsson
Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.
- Dagur B. Eggertsson
Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?
- 1
- 2
- 3
- Dagur B. Eggertsson4
- 5
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Eðlilegt er að hækka auðlindagjöld.
Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?
- 1
- 2
- Dagur B. Eggertsson3
- 4
- 5
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Skattlagning þarf að vera sanngjarnari - dreifa byrðunum - en skattar á almenning ættu ekki að hækka.
Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?
- 1
- 2
- 3
- Dagur B. Eggertsson4
- 5
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Stórauka á íslenskukennslu.
Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?
- 1
- 2
- 3
- Dagur B. Eggertsson4
- 5
Svona svarar Dagur B. Eggertsson:
Efla á sveitarstjórnarstigið og heilbrigðisþjónustu um land allt.
Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Dagur B. Eggertsson3
- 4
- 5
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Dagur B. Eggertsson svaraði:
- Heilbrigðismál
- Húsnæðismál
- Vextir og verðbólga