Guðmundur Árni Stefánsson (1. sæti - Hafnarfjörður)
Fáein orð um þig.
Guðmundur Árni Stefánsson er oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og varaformaður Samfylkingarinnar á landsvísu. Hann hefur áður starfað sem blaðamaður, bæjarstjóri, bæjarfulltrúi, ráðherra, þingmaður og sendiherra.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1955
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi.
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku og sænsku.
Við hvað starfar þú?
Stjórnmálamaður; bæjarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar.
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Fjölbýlishúsi.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Stúdentsprófi.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Frá stofnun Samfylkingarinnar í maí 2000 - áður í Alþýðuflokknum frá unglingsaldri.
Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?
Að Hafnarfjörður blómstri á öllum sviðum. Íbúafjöldi verði um 40 þúsund og þar þrífist öflugt og fjölbreytt atvinnulíf, sterk og víðfeðm velferðarþjónusta, opið og gott aðgengi að menningar-, íþrótta- og tómstundastarf verði til staðar, faglegir og góðir leikskólar hlúi að börnum og ungmennum, Flensborgarskóli og Tækniskóli bjóði upp á fjölþætt nám og að tryggður verði jafn réttur og möguleiki allra íbúa til lífsins gæða.
Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?
Ég fæddist í Hafnarfirði og hef búið þar alla tíð, að undanskildum 13 árum, þegar ég bjó í Stokkhólmi, Washington DC, Nýju Delí og Winnipeg. Ísland er gott land til að búa í. Velflest sveitarfélög á Íslandi hafa sinn sjarma.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Fjölmargir forystumenn jafnaðarmanna um allan heim hafa haft áhrif á mótun samfélaga til jöfnuðar og réttlætis. Þeir eru allir mín fyrirmynd á einn eða annan veg. Olav Palme er einn af þeim.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Hafnfirðingurinn, Bjöggi Halldórs, kemur upp í hugann. Blessuð sé minning hans. Bjössi Thor er frábær, Stefán Hilmars góður, bræðurnir Frikki og Jón Ragnar pottþéttir, Kristján Jóhanns var stórkostlegur þegar hann var uppá sitt besta og fleiri og fleiri. Við Íslendingar eigum fjölmarga snillinga á tónlistarsviðinu. Nigel Kennedy klassíski fiðluleikarinn var stórkostlegur, þegar hann kom á Listahátíð í Hafnarfirði fyrir margt löngu. Það voru ógleymanlegir tónleikar.
Hver er þín eftirlætisbók?
Nýja testamentið og Bókin um veginn.
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Schindler´s list.
Hvert er þitt aðaláhugamál?
Pólitík! Að fylgjast meða fótbolta og handbolta. Golfiðkun með góðu fólki og tónlistarhlustun. Og almennt að vera virkur þáttakandi í fjölþættu samfélagi fólks. Að njóta lífsins.
Svör við kosningaprófinu:
Guðmundur Árni Stefánsson
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Hafnarfjörður er gott sveitarfélag, en má gera mun betur í þjónustu við bæjarbúa.
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- Guðmundur Árni Stefánsson2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Útsvar og fasteignaskattar eru mátulegir, en þjónustugjöld of há. Og lóðagjöld of há.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Þessi spurning er ófullnægjandi. Það þarf að leggja áherslu á hvorutveggja - þéttingu byggðar og ný hverfi.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Það er neyðarráðstöfnun að þurfa greiða heimagreiðslur og á að vera undantekning frá reglunni. Fremur tryggja vistun barna hjá dagforeldrum, ef hefðbundin leikskólavist er ekki í boði. En mest um vert að tengja - lok fæðingarorlof við framboð á leikskólavistun.
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Þetta er tvíeggjaður hvati og getur kallað fram misrétti milli þeirra sem geta stytt vinnudaginn og þarmeð vistunartíma, en hinir sem hafa ekki þennan valkosti og þurfa vinna lengri vinnudag til að ná endum saman, hafa ekki þennan valkost.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Þarf að endurskoða tímaröðun framkvæmda og útfærslu. En borgarlínan snýst fyrst og síðast um nýjar akgreinar fyrir strætó, þannig að hægt verði að bjóða upp á hraðstrætó, sem komist hratt og örugglega leiðar sinnar.
Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Spurningin er villandi. Fyrst á síðast á að fjölga sérakgreinum fyrir strætó, en það ekki markmið að fækka möguleikum fyrir almenna bílaumferð.
Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Það eru of margir einkabílar í umferðinni.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Það er hægt að byggja þéttar í Hafnarfirði og því ónauðsynlegt að færa út vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins að sinni.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Það þarf að þétta byggð í Hafnarfirði, en samhliða þarf að færa út vaxtamörk í bænum fyrir nýja byggð.
Það er forgangsatriði að sveitarstjórn beiti sér fyrir jarðgöngum undir Setbergshamar.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Svona svarar Guðmundur Árni Stefánsson:
Meginatriðið er að losa um umferðarhnúta á svæðinu, á Reykjanesbraut við Lækjargötu og meðfram Kaplakrika. Tvær leiðir eru færar til lausnar málinu: jarðgöng undir Setbergshamar eða mislæg gatnamót. Báðar leiðir leysa vandann, en jarðgöng hagkvæmari.
Menningarstarf í Hafnarfirði hefur liðið fyrir áherslu á íþróttir og uppbyggingu íþróttamannavirkja.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Sveitarstjórn hefði átt að tryggja að fyrirtækið Carbfix reisti kolefnisförgunarstöðina Coda Terminal í Straumsvík.
- Guðmundur Árni Stefánsson
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Guðmundur Árni Stefánsson svaraði:
- Húsnæðismál
- Málefni leik- og grunnskóla
- Samgöngumál