Halldóra Mogensen (2. sæti - Reykjavíkurkjördæmi norður)
Fáein orð um þig.
Ég held að samfélagið okkar væri fallegra ef við fengjum öll að gera minna og vera meira. Saman.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1979
Í hvaða sveitarfélagi býrð þú?
Reykjavík
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku
Við hvað starfar þú?
Þingkona
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Leiguhúsnæði
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Grunnskóla
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
12 ár
Hvernig á Ísland að vera eftir 10 ár?
Heilbrigt og skapandi lýðræðissamfélag þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að lifa og dafna í samræmi við eigin ástríðu og styrkleika. Samfélag þar sem enginn þarf að líða skort, þar sem þörfum allra er mætt innan marka nýtanlegra auðlinda, með hliðsjón af lífvænleika jarðarinnar.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Radiohead, Múm, Little Dragon
Hver er þín eftirlætis bók?
Annaðhvort Dune eftir Frank Herbert eða The Sirens of Titan eftir Kurt Vonnegut
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Þessi spurning er ekki hægt. Ætli það sé ekki The Matrix eða The Big Lebowski
Hvert er eftirlætisáhugamálið þitt?
Hitta fólk, skrifa ljóð og spila Fortnite
Svör við kosningaprófinu:
Halldóra Mogensen
Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.
- Halldóra Mogensen
Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Standa þarf vörð um opinbert heilbrigðiskerfi. Einkarekstur er mikilvæg viðbót við opinbert heilbrigðiskerfi en það þarf að passa að fjármagna einungis þjónustu sem þörf er á og passa að ekki skapist slíkt samkeppnisumhverfi um mikilvæga sérfræðiþekkingu að grafið sé undan hlutverki Landsspítalans sem háskólasjúkrahús.
Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Það er eðlilegt og nauðsynlegt að kenna í skólum hvaða mannréttindi við búum við, sögu þeirra og tilgang. Mikilvægt er að byggja upp menntakerfi sem stuðlar að heilbrigðu og skapandi lýðræðissamfélagi þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að þroskast í samræmi við eigin áhuga og styrkleika.
Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.
- Halldóra Mogensen
Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.
- Halldóra Mogensen
Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Ísland á aldrei að fjármagna vopnakaup, ekki fyrir neinn.
Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
- Halldóra Mogensen
Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.
- Halldóra Mogensen
Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.
- Halldóra Mogensen
Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.
- Halldóra Mogensen
Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Mjög mikilvægt Hækkun gjalda ætti að beina að stærstu leyti að þeim fyrirtækjum sem menga mest.
Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Það er ekki hægt að herða lög til að fólk sæki ekki um vernd, nema með því að hætta að taka á móti umsóknum og gerast þannig brotleg við alþjóðlega samninga.
Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.
- Halldóra Mogensen
Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Það er mikilvægt að unnin verði úttekt á aðgerðum stjórnvalda. Það þarf að taka saman upplýsingar um reynslu mismunandi aðila á aðgerðum, hvað gekk vel og hvað gekk illa, til að við getum fengið heildarsýn og dregið lærdóm.
Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.
- Halldóra Mogensen
Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.
- Halldóra Mogensen
Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
- Halldóra Mogensen
Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.
- Halldóra Mogensen
Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.
- Halldóra Mogensen
Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.
- Halldóra Mogensen
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Það þarf að skoða regluverið heildrænt og fjarlægja hindranir sem auka óskilvirkni og kostnað en það þarf að passa að kröfur um heilnæmt húsnæði trompi kröfur um skilvirkt og ódýrt húsnæði.
Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.
- Halldóra Mogensen
Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?
- 1
- 2
- Halldóra Mogensen3
- 4
- 5
Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?
- 1
- Halldóra Mogensen2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Við eigum að hætta að skattleggja lægstu launin
Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?
- 1
- 2
- 3
- Halldóra Mogensen4
- 5
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Jaðarsetning fólks kostar samfélagið gríðarlega mikið.
Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?
- 1
- 2
- 3
- Halldóra Mogensen4
- 5
Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Halldóra Mogensen3
- 4
- 5
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Halldóra Mogensen svaraði:
- Húsnæðismál
- Menntamál
- Umhverfis- og loftslagsmál
Svona svarar Halldóra Mogensen:
Nýja stjórnarskráin er einnig gríðarlega mikilvæg. Þar eru grunnreglur samfélagsins sem allar aðrar reglur byggja á. Hafa þarf í huga að þjóðin er stjórnarskrárgjafinn.