Jónína Ingólfsdóttir (15. sæti - Reykjavíkurkjördæmi norður)
Fáein orð um þig.
Læknir og einstæð móðir. Eðli málsins samkvæmt mjög áhugasöm um heilbrigðis- og velferðarmál en legg einnig ríka áherslu á mannréttindi og jafnrétti, umhverfismál og ábyrga efnahagsstjórn. Í heimi þar sem miskipting auðsins eykst dag frá degi skiptir miklu máli að tryggja sanngjörn lágmarkslaun og grunnframfærslu.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1985
Í hvaða sveitarfélagi býrð þú?
Reykjavík
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku, sænsku, dönsku og spænsku.
Við hvað starfar þú?
Læknir
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Íbúð í fjölbýli, eigið húsnæði.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Embættispróf frá Háskóla Íslands.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
1 og hálft ár.
Hvernig á Ísland að vera eftir 10 ár?
Á Íslandi eftir 10 ár verðum við vonandi búin að byggja verulega undir heilbrigðis- og velferðarkerfið okkar, ekki síst hvað varðar úrræði fyrir aldraða og öryrkja. Ísland verður leiðandi í heiminum hvað varðar umhverfismál. Öllum þegnum ríkisins er tryggð mannsæmandi lágmarks framfærsla og fátækt verður útrýmt. Dregið hefur verulega úr misskiptingu auðsins og fjármagnstekjur skattlagðar á sanngjarnan hátt. Stöðugleiki ríkir í efnahagsmálum.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Þórhildur Sunna, Bernie Sanders.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Skunk Anansie
Hver er þín eftirlætis bók?
Bróðir minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Jurassic Park
Hvert er eftirlætisáhugamálið þitt?
Bókalestur
Svör við kosningaprófinu:
Jónína Ingólfsdóttir
Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.
- Jónína Ingólfsdóttir
Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.
- Jónína Ingólfsdóttir
Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.
- Jónína Ingólfsdóttir
Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.
- Jónína Ingólfsdóttir
Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.
- Jónína Ingólfsdóttir
Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.
- Jónína Ingólfsdóttir
Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
- Jónína Ingólfsdóttir
Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.
- Jónína Ingólfsdóttir
Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.
- Jónína Ingólfsdóttir
Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.
- Jónína Ingólfsdóttir
Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
- Jónína Ingólfsdóttir
Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.
- Jónína Ingólfsdóttir
Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.
- Jónína Ingólfsdóttir
Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.
Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.
- Jónína Ingólfsdóttir
Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.
- Jónína Ingólfsdóttir
Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
- Jónína Ingólfsdóttir
Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.
- Jónína Ingólfsdóttir
Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.
- Jónína Ingólfsdóttir
Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.
- Jónína Ingólfsdóttir
Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.
- Jónína Ingólfsdóttir
Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?
- 1
- 2
- 3
- Jónína Ingólfsdóttir4
- 5
Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?
- 1
- 2
- Jónína Ingólfsdóttir3
- 4
- 5
Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?
- 1
- 2
- 3
- Jónína Ingólfsdóttir4
- 5
Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?
- 1
- 2
- 3
- Jónína Ingólfsdóttir4
- 5
Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?
- Jónína Ingólfsdóttir1
- 2
- 3
- 4
- 5
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Jónína Ingólfsdóttir svaraði:
- Heilbrigðismál
- Jafnrétti og mannréttindi
- Vextir og verðbólga