Líf Magneudóttir (2. sæti - Reykjavík)

Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?

1974

Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?

Danmörk

Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?

Dönsku, flest norðurlandamál, ensku, spænsku.

Við hvað starfar þú?

Borgarfulltrúi.

Í hvers konar húsnæði býrð þú?

Í eignaríbúð í fjölbýlishúsi.

Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?

B.ed. gráða frá Kennaraháskóla Íslands. Á enn eftir að klára meistaranám mitt í íslenskukennslu við Háskóla Íslands. Fer í það þegar mér gefst tími.

Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?

Hef verið félagi í Vinstri grænum síðan 2005.

Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?

Ég vil að Reykjavík verði kolefnishlutlaus, rík af menningu- og listalífi, sé öflug háskólaborg með nægu framboði af fjölbreyttri atvinnu, heilnæm og gróðri vaxin og við séum umvafin náttúru. Reykjavík á að vera eftirsóknarverð borg að búa í með hágæða almenningssamgöngum og fullkláruðu hjólaneti og fjölbreyttu framboði íbúða. Ég vil að í leik- og grunnskólum fái kennarar góðan stuðning, hafi næg úrræði og geti farið skapandi leiðir í að mennta börnin okkar í öruggu og þroskandi umhverfi og í góðu húsnæði

Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?

Ég myndi flytja til Katalóníu.

Hver er þín fyrirmynd í pólitík?

Hver sá sem stendur með sinni sannfæringu og kemur fram af heilindum og auðmýkt.

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?

Styrkár Flóki og allir hinir frábæru strákar í Litlu sveitinni.

Hver er þín eftirlætisbók?

Selur kemur í heimsókn og Kötturinn sem fór sínar eigin leiðir.

Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?

The Princess bride.

Hvert er þitt aðaláhugamál?

Súrdeigsbakstur og að gera upp gömul hús og húsgögn.

Svör við kosningaprófinu:

Líf Magneudóttir

Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Líf Magneudóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Líf Magneudóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?

  1. 1
  2. Líf Magneudóttir
    2
  3. 3
  4. 4
  5. 5

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Það eru tækifæri til að afnema og/eða lækka ýmiss konar þjónustugjöld sem snúa að fjölskyldum barna og tekjulágra Reykvíkinga. Að sinni þarf skattlagning að haldast óbreytt en það er brýnt að við tökum upp viðræður við Ríkið um hvernig við getum styrkt tekjustofna sveitarfélaga með réttlátum hætti.

Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Líf Magneudóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Hvort tveggja er mikilvægt, undirbúa ný framtíðar hverfi en líka halda áfram að byggja í takt við Aðalskipulag Rvk. og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og út frá greiðum almenningssamgöngum. Skipulag og uppbygging borga getur tekið langan tíma og því þarf að hafa skýra mynd af þróuninni og lýðfræði. Í allri uppbyggingu þarf ætíð að gera ráð fyrir lykilstofnunum s.s. leik- og grunnskólum, afþreyingu, íþróttum og tómstundum og fjölbreyttri samsetningu hverfa þar sem ólíkum þörfum íbúa er sinnt vel.

Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Líf Magneudóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Íbúakosningar eru ein leið til að ná fram afstöðu íbúa í málum. Það má líka fara aðrar og fjölbreyttar lýðræðislegar leiðir til að ná fram vilja og afstöðu íbúa. Meta þarf hverju sinni hvað eigi best við. Sambland af ólíkum aðferðum við að iðka lýðræðið er vænlegt til árangurs. Það þarf að stofna aftur sterk íbúasamtök í hverju hverfi, sem eru óháð stjórnmálaflokkum, og þau þurfa að koma mikið fyrr að málum og áður en ákvarðanir eru teknar.

Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.

  1. Mjög ósammála
  2. Líf Magneudóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Þetta er menntapólitísk spurning með mörgum álitaefnum. Fyrsta menntastig barna er leikskólinn og ef við værum að hanna skólakerfið frá grunni í dag þá væri það líklega ólíkt því sem við þekkjum. Margt hangir á spýtunni eins og atvinnuþátttaka kvenna, jafnrétti kynja, lenging fæðingarorlofs í a.m.k. tvö ár og hærri greiðslur, náms- og starfsaðstæður í leikskólum, velferð og þroski barna, fjölgun leikskólakennara og fleira. Leikskólinn er fyrst og fremst fyrir börn og á að skoðast út frá því.

Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Hlutverk sveitarfélaga er ekki að greiða lengra fæðingarorlof. Ríkið á að lengja fæðingarorlof og gera foreldrum jafn kleift til að taka það. Heimgreiðslur leysa engan vanda varanlega. Það hefur sannast að heimgreiðslur búa til aukinn vanda kvenna og frekari kynjaskekkju. Það þarf að setja allan kraft í að efla leikskólastigið, fjölga leikskólakennurum, halda áfram að bæta náms- og starfsaðstæður í leikskólum og styrkja uppbyggingu öflugra menntastofnana í öllum hverfi með góðu rými úti og inni.

Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Líf Magneudóttir sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Starfsfólk leikskóla hefur of lengi verið undir miklu álagi sem hefur raskað vistunartíma barna og skapað óstöðugleika fyrir m.a. fjölskyldur barna. Brýnt er að búa til góð náms- og starfsskilyrði í leikskólum því það er best fyrir börn, foreldra þeirra og starfsfólk. Í leikskólum mætast ólíkir hópar með ólíkar þarfir og mikilvægt er að ná samtali og skilningi hvað sé börnum fyrir bestu. Jákvæðir hvatar geta vissulega haft áhrif en mikilvægt er að rýna og bregðast við áhrifum af öllum breytingum.

Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Það að jafna aðgengi barna, óháð fjárhag, að íþróttum, tómstundum, tónlistar- og listnámi, söngi, dansi, leiklist- og myndmennt (svo eitthvað sé nefnt) er jafnaðar- og réttlætismál en líka öflug forvörn. Það á líka að jafna fjárframlög til ólíkra greina og styðja betur við starf og greinar sem kannski fá börn og ungmenni stunda.

Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Ríkidæmi Reykjavíkur er ekki síður fólgið í meiriháttar menningarlífi og listum, tónleikastöðum, leikhúsum, listasöfnum, óperu, sinfóníunni, útilistaverkum í almannarými, barnamenningu, bókasöfnum, skólahljómsveitum og svona mætti lengi telja. Við eigum ekki að skera við nögl í menningu og listum í sinni fjölbreyttu mynd í Reykjavík.

Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Það á aldrei að mismuna börnum. Engum börnum, aldrei. Öll börn eiga að fá að sitja við sama borð.

Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Líf Magneudóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Hér vantar forsendur og ekki er tekið fram hvort þetta séu sértækar eða almennar ívilnanir. Það er því erfitt að svara þessu nema að gefnum forsendum. Annars er það Alþingi sem samþykkir lög sem liðka fyrir slíkt í sveitarfélögum og ríkisstyrkjareglur Evrópusambandsins setja sveitarfélögum líka mörk.

Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Líf Magneudóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Heimurinn er fullur af alls kyns úrgangi, rusli og endurvinnsluefnum sem ekki rata í réttan farveg. Við erum betur sett ef við náum að koma öllum okkar úrgangi í réttan farveg. Það hvílir skylda á okkur öllum að gera eins vel og við getum fyrir umhverfið og náttúruna og vera fyrirmyndir komandi kynslóða.

Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Líf Magneudóttir sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Hvers konar þjónustu? Eldra fólk er alls konar og stór hluti eldra fólks sem þarf aukna þjónustu fær hana hjá Ríkinu. Það er vel að styrkja fólk á þriðja æviskeiðinuy í Reykjavík í samráði og samtali við það en greina þarf hvernig auknu fé til málaflokksins yrði varið og hvar það myndi nýtast best. Þetta er samtal við öldungaráð Reykjavíkur!

Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.

  1. Mjög ósammála
  2. Líf Magneudóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Reykjavík ætti að leggja sig fram við að hafa fjölbreytt framboð af hvers kyns afþreyingu, tækifærum til samveru og hreyfingar í samfélagshúsum og útivistarmöguleikum frekar en að gefa út frístundakort fyrir eldra fólk.

Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Það er ekkert svokallað við þennan samgöngusáttmála. Hann var uppfærður og undirritaður þverpólitískt af Ríki og sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu árið 2024 og er í gildi þangað til annað er ákveðið.

Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Líf Magneudóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Samsetning íbúa og stærð íbúða er ólík í nýrri uppbyggingu og ekki kalla allar íbúðir á eitt stæði. Fólk á líka að geta keypt sig frá bílastæðum enda hækka þau íbúðaverð, líka hjá þeim sem ekki eiga bíla. Nýlega uppfærðar reglur um hámarksfjölda bíla- og hjólastæða ná vel utan um þetta og ekki er þörf á endurskoðun þeirra að sinni.

Það eru of margir einkabílar í umferðinni.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Líf Magneudóttir
    Mjög góð tillaga

Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.

  1. Mjög ósammála
  2. Líf Magneudóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Finna þarf leiðir til að samræma öfluga vatnsvernd og það góða almennings útivistarsvæði og náttúrugæði sem Heiðmörk býr yfir.

Hverfi Reykjavíkur njóta jafnræðis þegar kemur að þjónustu sem sveitarfélagið veitir.

  1. Mjög ósammála
  2. Líf Magneudóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Verkefni okkar sem erum kjörin í borgarstjórn er m.a. að jafna aðstöðumun íbúa að þjónustu, samgöngum og öllu því sem við þurfum til að lifa vel og glöð í Reykjavík. Það er talsvert sem betur má fara í þeim efnum.

Festa á svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum í sessi til framtíðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Líf Magneudóttir sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Það þarf að meta reynsluna af leikskólaleiðinni í Reykjavík. Markmiðið með henni er að búa börnum, foreldrum þeirra og starfsfólki í leikskólum betri náms- og starfsaðstæður og fyrirsjáanleika.

Koma þarf í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar.

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Hætta á við fyrirhuguð Miklubrautargöng.

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Reykjavíkurflugvöllur á að vera í Vatnsmýri til frambúðar.

  1. Líf Magneudóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Líf Magneudóttir:
Verið er að leita að nýjum stað fyrir innlandsflugið og það þarf að botna. Mikilvægt er að Ríkið og Isavia virði gerða samninga og færi einka- og kennsluflugið úr Vatnsmýrinni. Einnig er mikilvægt að þyrlufluginu verði fundinn annar staður. Mín persónulega skoðun er sú að best hefði verið að taka ákvörðun fyrir löngu síðan að færa innnalandsflugið til Keflavíkur og samnýta innviði þar.

Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

Líf Magneudóttir svaraði:

  • Fjármál og rekstur sveitarfélagsins
  • Málefni leik- og grunnskóla
  • Málefni fatlaðs fólks