María Pétursdóttir (2. sæti - Reykjavíkurkjördæmi norður)

Fáein orð um þig.

Ég er myndlistamaður og kennari að mennt en hef glímt við veikindi frá 28 ára aldri og því búið við örorku milli þess sem ég hef farið út á vinnumarkaðinn og unnið miðað við getu á mismunandi tímum. Ég hef starfað við kennslu, og unnið sem aðstoðamaður iðjuþjálfa. rekið verslun og silkiþrykk verkstæði auk þess að starfa við þáttagerð á Samstöðinni. Ég hef starfað með Sósíalistaflokk Íslands frá stofnun og síðustu ár verið formaður málefnahóps ÖBÍ um húsnæðismál. Ég á tvö börn, stjúpdóttur og tvö barnabörn.

Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?

1972

Í hvaða sveitarfélagi býrð þú?

Reykjavík

Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?

Íslandi

Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?

Ensku, dönsku og sænsku

Við hvað starfar þú?

Málefnahóp ÖBÍ um húsnæðismál í hlutastarfi.

Í hvers konar húsnæði býrð þú?

Eigin íbúð í fjölbýli.

Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?

Diplómanám í kennslufræðum.

Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?

Frá stofnun hans árið 2017.

Hvernig á Ísland að vera eftir 10 ár?

Efnahagslegur ójöfnuður á ekki að þekkjast og enginn á að þurfa að líða skort. Fatlað fólk, barnafólk, einstæðir foreldrar, einstæðingar, eldri borgarar, innflytjendur og listafólk eiga öll að ná endum saman og velferðarkerfið á að grýpa fólk. Heilbrigðis- og menntakerfin eiga að vera sterk og okkur að kostnaðarlausu og húsnæðiskerfið aðgengilegt öllum.Tekjustofnar almennings auknir með því að innheimta eðlileg auðlindagjöld og nýja stjórnarskráin lögfest. Fordómaleysi, jafnrétt og mannúð okkar aðalsmerki.

Hver er þín fyrirmynd í pólitík?

Alexandria Ocasio Cortes, Rosa Luxemburg

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?

Philip Glass, Oscar Schuster, Nina Simone, Ayo, Iyeoka, Kovacs

Hver er þín eftirlætis bók?

Bókaþjófurinn og Næturgalinn.

Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?

The scarlette pimpernell

Hvert er eftirlætisáhugamálið þitt?

Improvisera á píanó.

Svör við kosningaprófinu:

María Pétursdóttir

Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Í alþjóðasamanburði er Ísland rík þjóð og kemur gjarnan vel út á ýmsum mælikvörðum en samfélagið einkennist ekki af réttlæti þegar þúsundir barna búa við fátækt, húsnæðiskrísa ríkir sem og ójöfnuður.

Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Það þarf að styðja hið opinbera kerfi og tryggja að það sé gott í stað þess að færa einkafyrirtækjum leið til þess að hagnast á heilbrigðisþörfum fólks.

Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.

  1. Mjög ósammála
  2. María Pétursdóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Skólinn er í sjálfu sér samfélag og þarf að taka þátt í að búa nemendur undir lífið og þátttöku þeirra í lýðræðislegu samfélagi. Eðlilegt er að foreldrar kenni börnum sínum samfélagsleg gildi einnig en ekki eru allir foreldrar jafn vel í stakk búnir til þess.

Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.

  1. Mjög ósammála
  2. María Pétursdóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Sósíalistaflokkurinn styður uppbyggingu almenningssamgangna og uppbygging samgönguinnviða enda mikil þörf á en getur ekki tekið undir fjármögnun með veggjöldum en fjallað er um slíkan valmöguleika sem fjármögnunarhluta Samgöngusáttmálans.

Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Í stefnu Sósíalistaflokksins um utanríkismál kemur fram að við fordæmum allt ofbeldi og styðjum á engan hátt stríðsátök.

Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Mjög mikilvægt Heilbrigðisþjónusta á að vera gjaldfrjáls.

Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Mjög mikilvægt Hér má sjá tvær ályktanir Sósíalistaflokks Íslands um þjóðarmorðið í Palestínu: https://sosialistaflokkurinn.is/2024/10/20/islensk-stjornvold-eru-samsek/ https://sosialistaflokkurinn.is/2023/10/28/stodvid-arasir-a-gaza/

Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Hér er þessum lið svarað í garð fyrirtækja en ekki hvað varðar skatta á almenning: Sósíalistar leggja til stigvaxandi kolefnis- og mengunarskatta á fyrirtæki til að verja umhverfi og náttúru. Aðgerðir í loftslagsmálum verða að vera samfélagslega réttlátar.

Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.

  1. Mjög ósammála
  2. María Pétursdóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. María Pétursdóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Hlusta þarf á vilja íbúa og mæta því eins og kostur er.

Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. María Pétursdóttir
    Mjög góð tillaga

Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. María Pétursdóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Skiptar skoðanir eru um málið og þörf á að ræða það mál í stærra samhengi við almenning. Utanríkisstefna Sósíalistaflokksins er m.a. um að auka lýðræðislega aðkomu almennings að ákvarðanatöku varðandi veigamikla þætti heildstæðrar utanríkisstefnu og að allar stærri ákvarðanir sem komi til álita og varða alþjóðlegt samráð og þátttöku í stærri bandalögum verði settar í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Stefna Sósíalistaflokks Íslands í samgöngumálum kveður á um að jarðgöng, brýr og vegir séu öllum aðgengilegir án gjaldtöku og veggjöldum verið alfarið hafnað.

Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.

  1. María Pétursdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.

  1. Mjög ósammála
  2. María Pétursdóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Alþingi boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. 66,9% kjósenda samþykktu í atkvæðagreiðslunni að tillögur sem fyrir þá voru lagðar skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands. Tillögurnar eru í daglegu tali kallaðar nýja stjórnarskráin. Við eigum nýja stjórnarskrá og hún ætti að taka strax gildi. Í framhaldinu telur Sósíalistaflokkur Íslands að umgangast ætti hana sem lifandi samfélagssáttmála, sem getur tekið breytingu með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. María Pétursdóttir
    4
  5. 5

Svona svarar María Pétursdóttir:
Sósialistaflokkurinn vill lækka skatta á smærri fyrirtæki og einyrkja auk þess að lækka tryggingargjald á fyrstu starfsmenn en hækka skatta á allra stærstu fyrirtækin. Til þess að fyrirtækin greiði eðlilega til samneyslu sveitarfélaganna verði aftur komið á aðstöðugjaldi og það þrepaskipt eftir stærð þeirra.

Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?

  1. María Pétursdóttir
    1
  2. 2
  3. 3
  4. 4
  5. 5

Svona svarar María Pétursdóttir:
Mjög mikilvægt Rökstuðningur: Sósíalistaflokkurinn vill afnema skatt af lægstu launum og þar með talið á grunnlífeyri eftirlaunafólks, öryrkja og fólks með fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum.

Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. 4
  5. María Pétursdóttir
    5

Svona svarar María Pétursdóttir:
Stjórnvöld eiga að leggja mun meira í þennan málaflokk en áhersla stjórnvalda ætti að vera á inngildingu fremur en aðlögun sem er einhliða lögð á þá sem hingað flytjast.

Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. María Pétursdóttir
    4
  5. 5

Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?

  1. 1
  2. María Pétursdóttir
    2
  3. 3
  4. 4
  5. 5

Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

María Pétursdóttir svaraði:

  • Heilbrigðismál
  • Húsnæðismál
  • Vextir og verðbólga

Svona svarar María Pétursdóttir:
Þá eru útgjöld og tekjur hins opinbera einnig forgangsmál hér.