Sanna Magdalena Mörtudóttir (1. sæti - Reykjavík)
Fáein orð um þig.
Ég heiti Sanna, ég er sósíalisti og ólst upp í fátækt með einstæðri móður. Enginn á að búa við fátækt. Ég veit að aðstæðurnar sem við mæðgur bjuggum við eru því miður enn til staðar í samfélaginu í dag, sem er óboðlegt. Vinstrið býður sig fram til þess að við getum öll búið við öryggi. Ég hef húmor, gleði og liti að leiðarljósi í mínu dagsdaglegu lífi. Verkefnið framundan er stórt og ég er hér til þjónustu reiðubúin.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1992.
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi.
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku, smá spænsku og eitt og eitt orð á svahíli.
Við hvað starfar þú?
Ég hef mikla ánægju af starfi mínu sem borgarfulltrúi en er mannfræðingur að mennt og það gagnast mér á hverjum degi.
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Tveggja herbergja leiguíbúð á einkamarkaði.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Meistaranám í mannfræði.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Vinstrið er nýtt framboð sem var stofnað formlega í vetur, það var ánægjulegt að koma að því að sameina vinstrimenn.
Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?
Reykjavíkurborg á að vera raunverulegur valkostur fyrir ungt fólk að velja að búa í og lifa sínu lífi. Enginn á að vera skattlagður út úr eigin nærumhverfi. Ég vil að almenningssamgöngur séu áreiðanlegur og traustur valkostur þannig að við séum borg á heimsmælikvarða, ég vil að fólk hafi húsnæði og að fólk fái þá lögbundna þjónustu sem það á rétt á og við verðum heldur betur að ná því fyrr. Eftir tíu ár verður lista- og menningarstarf búið að vera í miklum blóma fyrir íbúa og gesti borgarinnar.
Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?
Ég myndi velja eitthvað sveitarfélag í Tansaníu, þar sem ég á fjölskyldu sem býr þar.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Angela Davis.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
2pac og Destiny's Child.
Hver er þín eftirlætisbók?
Ljónið, norninn og skápurinn.
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
The Shawshank Redemption.
Hvert er þitt aðaláhugamál?
Förðun að mála mig eins og þekktar persónur.
Svör við kosningaprófinu:
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Reykjavík hefur alla burði til þess að vera samfélag fyrir okkur öll en til þess þarf að bæta ýmislegt eins og í húsnæðismálum.
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Það er margt vel gert en það þarf að bæta opinbera þjónustu frekar sérstaklega hvað varðar húsnæðismál, velferðarþjónustu og stuðning við til dæmis börn, eldra fólk og fatlað fólk. Ég er ekki ánæðg með þá stöðu að við sem sveitarfélag séum með langa biðlista eftir sjálfsagðri þjónustu.
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Sanna Magdalena Mörtudóttir3
- 4
- 5
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Vinstrið vill útsvar á fjármagnstekjur, það að sanngjarnt og sjálfsagt að þeir ríkustu sem hafa tekjur sínar aðallega af fjármagstekjum greiði í sameiginlega sjóði jafnt við aðra. Til þess þarf lagabreytingu á Alþingi en Vinstrið talar skýrt fyrir sanngjarnri skattheimtu. Með sjálfsögðu útvsari á fjármagnstekjur væri hægt að lækka þjónustugjöld á íbúa. Þetta hefði átt að vera tvær spurningar um skatta annarsvegar og gjöld hinsvegar.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Það þarf augljóslega að gera bæði. Nýta innviði þar sem hægt er til þess að byggja enn öflugri hverfi fyrir fleiri sem þurfa á heimili á að halda en í ört vaxandi borg þarf einnig að byggja á nýjum svæðum.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Ríkið þarf að koma inn með stuðning og fjármagn, eðlilegt er að skilgreina þetta formlega sem fyrsta skólastigið en ekki endilega að binda það við 12 mánaða aldur þar sem taka þarf mið af fjölbreyttum aðstæðum og þörfum fjölskyldna og barna. Leikskólinn er fyrir börn og við þurfum að hugsa skipulagið út frá þeim. Tryggja þarf einnig að starfsaðstæður séu viðunandi.
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Sveitarfélög bera ríka ábyrgð gagnvart barnafjölskyldum, ég tel að forgagnsraða eigi fjármagni í uppbyggingu og viðhaldi góðra leikskóla þannig að þeir séu til staðar í öllum hverfum barnanna. Á sama tíma er skiljanlegt að barnafjölskyldur séu í mjög þröngri stöðu við að láta allt ganga upp og þess vegna þarf borgin að forgagnsraða uppbyggingu og viðhaldi leikskóla og gera það sem hægt er til að gera leikskóla að aðlaðandi starfsumhverfi þannig að hægt sé að stóla á leikskólanna.
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Lokatakmarkið er að leikskólinn sé gjaldfrjáls. Finna þarf leiðir til að bæta starfsumhverfi og hefur borgin stigið skref í þá átt. Nú þarf að fylgjast með áhrifum breytinga bæði á starfsfólk og barnafjölskyldur.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Já en það ætti að finna aðrar leiðir en eingöngu að styðjast við frístundastyrkinn til dæmis að finna leiðir þannig að það sé ekki svona dýrt að taka þátt.
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Ég átta mig ekki fyllilega á því hvað felst í þessu, að mínu mati fer það eftir stærð fyrirtækja. Eðlilegt er að veita minni fyrirtækjum meiri stuðning.
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Víða þarf að bæta aðgengi íbúa til þess að flokka, grenndarstöðvar eru langt í burtu fyrir þau sem eiga ekki bíl og það er ekki boðlegt að fara með mikið magn til flokkunar í strætó.
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Það á að einblína á aðgengilegar frístundir og frekar að finna leiðir til þess að gera þær ódýrar eða gjaldfrjálsar í öllum hverfum borgarinnar í stað þess að vera fjármunum í að niðurgreiða tómstundir.
Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Reykjavíkurborg er nú þegar aðili að samgöngusáttmálanum. Persónulega er ég á móti veggjöldum sem ríkið hefur talað um að leggja á.
Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Engar meiri tafir við þurfum betri almenningssamgöngur!
Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Með því er verið að fjölga valkostum fyrir okkur öll.
Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Það eru of margir einkabílar í umferðinni.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Þetta er margþætt og mikilvægt málefni sem krefst ígrundunar. Það þarf að vernda vatnið en útfæra mjög vel með tilliti til lýðheilsusjónarmiða og aðgengi almennings að vinsælu útivsitarsvæði.
Hverfi Reykjavíkur njóta jafnræðis þegar kemur að þjónustu sem sveitarfélagið veitir.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Festa á svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum í sessi til framtíðar.
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Það er ekki hægt að ákveða að festa eitthvað í sessi sem ekki er komin nægjanlega reynsla á. Fylgjast þarf markvisst með áhrifum breytinganna með reglulegri gagnaöflun til að mynda í formi kannanna þannig að niðurstöður nýtist til að betrumbóta.
Koma þarf í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Hætta á við fyrirhuguð Miklubrautargöng.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Reykjavíkurflugvöllur á að vera í Vatnsmýri til frambúðar.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Það þarf að hætta strax við óþarfa flugumferð, líkt og einkaflug og útsýnisflugvélar og finna kennsluflugi annan stað. Á meðan ekki er búið að finna stað fyrir flugvöllinn er eðlilegt að tryggja sjúkraflugi og nauðsynlegu flugi eðlilega umgjörð.
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Sanna Magdalena Mörtudóttir svaraði:
- Húsnæðismál
Svona svarar Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Þetta er allt mikilvægt, hlúa þarf vel að ólíkum hópum samfélagsins en húsnæði er grunnurinn að öllu öðru.