Sigtryggur Ellertsson (4. sæti - Akureyri)
Fáein orð um þig.
Vistvænn verslunareigandi með brennandi áhuga á umhverfis-, jafnréttis- og samfélagsmálum.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1994
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku, norsku, dönsku (samkvæmt grunnskólaskírteininu) og un poco spænsku.
Við hvað starfar þú?
Ég á og rek Vistvænu Búðina í Brekkugötu 3 með bróður mínum en vinn einnig sem umönnunaraðili á öldrunarheimili samhliða sjúkraliðanámi.
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Ég bý með manninum mínum í stúdentaíbúð á vegum FÉSTA, en hann er í námi við HA.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Ég er með bókhaldsmenntun og er að mennta mig sem sjúkraliða.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Ég hef alltaf kosið VG.
Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?
Fyrirmyndarsveitarfélag á heimsmælikvarða. Blússandi lista- og menningarlíf, fullur af ungu fólki sem kemur hingað til að stunda nám og atvinnu, fjölbreytt íþrótta- og tómstundalíf og einstakur bæjarbragur sem einkennst hefur af uppbyggingu í þágu fólks og framtíðar fremur en fjárfesta og skyndigróða.
Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?
Hef ekki hugsað svo langt því hér er ég og ætla að halda áfram að festa rætur. Það munu sko engin reka mig að heiman!
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Úff, erfitt að gera upp á milli, svo mikið af flottu fólki að gera sitt besta.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Ég dróg manninn minn á litla Dua Lipa tónleika í Kaupmannahöfn áður en hún varð heimsfræg! Það skilur alltaf eftir sig góð spor. Ég vann líka einusinni með Ágústi Þór og held alltaf með honum eftir það.
Hver er þín eftirlætisbók?
Ég les svo mikið af allskonar fræðslubókum og finnst þær sjúklega áhugaverðar. Ætli það sé ekki bara bókin sem ég er að lesa hverju sinni. Í toppsæti er samt "Let them theory" e. Mel Robbins og ég mæli með að öll tileinki sér boðskap hennar!
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Það fer algjörlega eftir skapi og líðan... og því hvað var í matinn.
Hvert er þitt aðaláhugamál?
Ferðalög. Það eru forréttindi að fá að skoða heiminn.
Svör við kosningaprófinu:
Sigtryggur Ellertsson
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Ef það væri ekki gott að búa á Akureyri þá byggi ég ekki hér. Ég er einn af þeim sem tók meðvitaða ákvörðun um að flytja í sveitarfélagið þrátt fyrir að hafa engin fyrri tengsl við bæinn. En lengi má gott gera betra, stöðnun er afturför til lengri tíma.
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Starfsfólk sveitarfélagsins vinnur greinilega af miklum metnaði og gerir það sem í þeirra valdi stendur mjög vel. Hinsvegar eru margir fletir á þjónustu sveitarfélagsins sem þörf er á að bæta, sér í lagi kerfislega.
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Sigtryggur Ellertsson3
- 4
- 5
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Akureyrarbær stendur sig mjög vel miðað við stærð sveitarfélags að vinna úr því fjármagni sem bærinn hefur úr að moða. Hinsvegar er þessi spurning tvískipt og ekki auðvelt að svara henni þar sem skattar og gjöld eru algjörlega sitthvor hluturinn, þar sem hægt er að stilla skatta af þannig þeir leggist misjafnlega á fólk eftir getu og efnahag en gjöld bitna yfirleitt mun verr á lágtekjufólki.
Gjaldskrá sveitarfélaga á aldrei að hækka umfram kjarasamninga.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Þarna þarf að vera jafnvægi. Þétting byggðar er mun hagkvæmari nýting á innviðum og fjármunum sveitarfélagsins en þá þarf hinsvegar að passa að uppbygging fari rétt fram og vegi ekki að lífsgæðum íbúa, t.d. þegar kemur að birtuskilyrðum eða aðgengi að grænum svæðum.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- Sigtryggur Ellertsson
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Staða vinnumarkaðar er sú í dag að þegar bil er á milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar þá eru það í miklum meirihluta konur sem brúa það með tilheyrandi tekju-, réttinda- og tækifæramissi. Leikskólavist í beinu áframhaldi af fæðingarorlofi er jafnréttis- og sanngirnismál.
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- Sigtryggur Ellertsson
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Því miður hefur reynslan sýnt okkur að þessi leið hentar þeim best sem minnst þurfa á því að halda, en kemur illa niður á konum, lágtekjufólki, innflytjendum og fjölskyldum þessa fólks. Álag á starfsfólk leikskóla er kerfislægur vandi sem á að leysa með fjármögnun og betri mönnun en ekki á kostnað fjölskyldna og barna.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- Sigtryggur Ellertsson
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Niðurgreiðsla íþrótta- og tómstundaiðkunar barna hefur gríðarlegt forvarna- og jöfnunargildi. Við erum með ótrúlega flott íþrótta- og tómstundafélög í sveitarfélaginu og ættum að gera mun meira í því að styðja þau við að efla og byggja upp þátttökumiðað starf sem er hannað fyrir öll.
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Menningarlíf samfélagsins er ofboðslega dýrmætt og kemur alltaf til með að skila hverri krónu sem við leggjum í það margfalt til baka.
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Hvers konar samfélag mismunar börnum!?
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- Sigtryggur Ellertsson
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Það fer algjörlega eftir samfélagslegum ávinningi þess rekstrar sem um ræðir. Stöðugildi, umhverfissjónarmið, sjálfbærni, verðmætasköpun, tengsl við önnur fyrirtæki á svæðinu, allt þetta skiptir miklu máli og ætti að hafa áhrif á það hvaða verkefni samfélagið styður í gegnum sveitarfélagið.
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- Sigtryggur Ellertsson
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Heldur betur, mjög sammála! Þetta er lýðheilsumál, sundlaugamenning Íslands er á heimsminjaskrá UNESCO, við ættum að efla þessa frábæru sérstöðu sem við höfum og hvetja til meiri notkunar.
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Við íbúar berum ábyrgð á okkar sorpi og Akureyringar eru upp til hópa ofboðslega stoltir af tækifærum til flokkunar.
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- Sigtryggur Ellertsson
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Allt sem hvetur eldri borgara til hreyfingar og virkni er ekki bara jákvætt fyrir samfélagið heldur hefur það forvarnargildi til lengri tíma og sparar samfélagssjóðum peninga.
Fækka ætti skemmtaferðaskipum sem leggjast að höfn í sveitarfélaginu.
- Sigtryggur Ellertsson
Sveitarstjórnin ætti að beita sér fyrir því að hætt verði að innheimta innviðagjald af skemmtiferðaskipum.
- Sigtryggur Ellertsson
Friða ætti Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi.
- Sigtryggur Ellertsson
Loka ætti göngugötunni í miðbæ Akureyrar alfarið fyrir bílaumferð.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Með lokun göngugötunnar myndast frábær tækifæri fyrir samfélagið, matarmarkaði, list til að blómstra og gerir miðbæinn að alvöru viðverustað sem fólk virkilega vill koma og vera á, allt árið um kring. Í þessu samhengi er þó mikilvæg að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra.
Lækka ætti hámarkshraða á þjóðvegi 1 í gegnum Akureyrarbæ.
- Sigtryggur Ellertsson
Fé bæjarins er vel varið í uppbyggingu íþróttamannvirkja.
- Sigtryggur Ellertsson
Svona svarar Sigtryggur Ellertsson:
Almennt er uppbygging íþróttamannvirkja jákvæð en gæta þarf mun betur að jafnvægi milli greina og félaga þegar kemur að ákvörðunum. Lýðheilsa og aðgengi almennings skiptir þar máli og jafnframt að uppbygging íþróttamannvirkja stuðli að þátttöku ekki síður en afrekum.
Leyfa á gömlu leigubílastöð BSO að vera áfram í miðbænum.
Færa ætti Blöndulínu 3 út fyrir bæjarmörk Akureyrar.
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Sigtryggur Ellertsson svaraði:
- Bæjarbragur
- Húsnæðismál
- Menningarmál