Stefán Pálsson (3. sæti - Reykjavík)
Fáein orð um þig.
Ég er Framari, Hlíðabúi, eiginmaður og faðir tveggja drengja. Fæddur og uppalinn í Reykjavík og vil hvergi annars staðar búa.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
1975
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Íslandi
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku og dönsku. Varla nema stautfær í þýsku og frönsku.
Við hvað starfar þú?
Sjálfstætt starfandi sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi.
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Í kjallaranum á frábærri blokk í Eskihlíðinni.
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
MSc-gráða.
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Gekk til liðs við Alþýðubandalagið á táningsaldri og í Vinstri græn skömmu eftir stofnun þess flokks.
Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?
Ég vil að borgin haldi áfram að nýta nálægð sína við náttúruna, verði hreinni, enn líflegri með kröftugu menningar- og íþróttastarfi, skólum sem sinni börnunum okkar vel og gefi fólki val um húsakost eins og hverjum og einum hentar.
Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?
Bara tilhugsunin er kvíðavaldandi.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Nicola Sturgeon, fyrrum forsætisráðherra Skotlands.
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
The Cure
Hver er þín eftirlætisbók?
Dauðar sálir eftir Gogol.
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
Chinatown
Hvert er þitt aðaláhugamál?
Fótbolti & sagnfræði
Svör við kosningaprófinu:
Stefán Pálsson
Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.
- Stefán Pálsson
Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.
- Stefán Pálsson
Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Stefán Pálsson3
- 4
- 5
Svona svarar Stefán Pálsson:
Það ætti að vera hægt að bæta þjónustu við íbúa í sveitarfélögum með því að laga skiptingu tekjustofna milli ríkis og sveitarfélaga án þess að það kalli á hækkun skatta.
Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Það er ónákvæmt að stilla þéttingu byggðar og nýjum vaxtarsvæðum fram sem andstæðum. Þróun borgarinnar mun kalla á hvort tveggja á komandi árum.
Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.
- Stefán Pálsson
Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Flöskuhálsinn þegar kemur að því að stækka leikskólakerfið er skortur á starfsfólki. Mönnunarvandinn verður ekki leystur með því að skella lagakvöð á sveitarfélögin þótt markmiðið sé í sjálfu sér ágætt.
Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Áhersla sveitarfélaga á að vera á að styrkja leikskólastigið og sterkar vísbendingar eru um að heimgreiðslur geti orðið til að draga úr kynjajafnrétti.
Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Grunnatriði í Reykjavíkurleiðinni svokölluðu er skapa jákvæða hvata til að ýta undir að lengd leikskóladagsins endurspegli styttingu vinnuvikunnar sem unnið hefur verið að um langt skeið. Það má þó ekki verða til að efnaminni foreldrum sé refsað.
Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla
- Stefán Pálsson
Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.
- Stefán Pálsson
Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.
- Stefán Pálsson
Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.
- Stefán Pálsson
Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.
- Stefán Pálsson
Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum
Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.
- Stefán Pálsson
Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.
- Stefán Pálsson
Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Mjög mikilvægt Sorpflokkun íbúa á höfuðborgarsvæðinu er einhver mikilvægasta loftslagsaðgerðin og skiptir máli í baráttu við stærstu ógn okkar tíma.
Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.
- Stefán Pálsson
Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Það er gríðarlegur munur á fjárhagslegri stöðu eldri borgara. Sumir búa við þröngan kost en aðrir eru meðal þeirra best settu í samfélaginu. Flatur frístundastyrkur til þessa hóps er því ómarkviss aðgerð.
Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
- Stefán Pálsson
Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.
- Stefán Pálsson
Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.
- Stefán Pálsson
Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Hlutfall bílaeignar og íbúafjölda er mismunandi eftir hverfum borgarinnar og samsetningar þeirra. Það er ekki sjálfgefið að sömu viðmið eigi við á öllum stöðum. Hafa ber líka í huga að bílastæði eru ekki ókeypis, einkum í bílakjöllurum og stuðla að hærra húsnæðisverði.
Það eru of margir einkabílar í umferðinni.
- Stefán Pálsson
Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Vatn er mögulega dýrmætasta og viðkvæmasta auðlind okkar og óhjákvæmilegt getur verið að færa fórnir til að vernda það. Hins vegar ætti að vera hægt að ná sátt um lausnir sem tryggja vatnsvernd en skerða ekki um of útivistarmöguleika í Heiðmörk.
Hverfi Reykjavíkur njóta jafnræðis þegar kemur að þjónustu sem sveitarfélagið veitir.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Það liggur fyrir að mörgum íbúum austari hverfanna í borginni finnst þeir afskiptir og að athygli borgarinnar beinist um of af eldri hverfunum í mið- og vesturhlutanum. Það er slæmt ef slík upplifun fólks er almenn og mikilvægt að vinna gegn því með öllum ráðum.
Festa á svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum í sessi til framtíðar.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Reykjavíkurleiðin er tilraun til að draga úr mönnunar- og fáliðunarvanda í leikskólunum. Ekki er komin reynsla á hana enn. Takist að ná markmiðunum með Reykjavíkurleiðinni er sjálfsagt að halda henni áfram.
Koma þarf í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Breytingarnar á skipulagi Suðurlandsbrautar eru mikilvægur þáttur í endurbótum á samgöngukerfi borgarinnar og munu reynast vel.
Hætta á við fyrirhuguð Miklubrautargöng.
- Stefán Pálsson
Einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur
- Stefán Pálsson
Reykjavíkurflugvöllur á að vera í Vatnsmýri til frambúðar.
- Stefán Pálsson
Svona svarar Stefán Pálsson:
Það er yfirlýst stefna ríkis og Reykjavíkurborgar að Reykjavíkurflugvöllur skuli víkja - en það þó ekki fyrr en að jafngóð eða betri lausn finnst í staðinn. Það prinsip stendur óhaggað.
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Stefán Pálsson svaraði:
- Húsnæðismál
- Málefni leik- og grunnskóla
- Menningarmál