Tinna Rut Jóhannsdóttir (9. sæti - Reykjavík)

Fáein orð um þig.

Ég er framleiðandi og hönnuður, athafnastýra og skrifstofukona, fjölskyldu- og félagshyggjumanneskja sem trúir því að við berum öll ábyrgð á því að við höfum það öll sem best. Sama hvað þú kýst þá hvet ég þig til að nota kosningaréttinn og kjósa þann 16. maí.

Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?

1972

Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?

Íslandi

Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?

Ensku, dönsku, ítölsku

Við hvað starfar þú?

Ég vinn á skrifstofu Faxalóahafna og sem athafnastýra og fermingarfræðsluleiðbeinandi hjá Siðmennt

Í hvers konar húsnæði býrð þú?

Þríbýli í 105 Reykjavík

Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?

BA í heimspeki og BA í hönnun; á bara ritgerðina eftir í meistarnámi í áfallastjórnun

Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?

Frá því í vor

Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?

Ég vil að í Reykjavík eigi öll heimili, eigi til hnífs og skeiðar og komist óhindrað allra sinna ferða. Ég vil minni mengun og minna ónæði af umferð og ég vil að myglu hafi verið útrýmt í öll byggingum. Ég vil að börn komist inn á leikskóla í sínu hverfi og eldri borgarar njóti lífsins og ég vil að aðgengi að heilsugæslu sé greitt. Ég vil ríkt menninga- og listalíf og ég vil fjölbreytta, þétta byggð; umhverfi sem stuðlar að hamingju fólks og velferð.

Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?

Hef ekki hugmynd!

Hver er þín fyrirmynd í pólitík?

Guðrún Ögmundsdóttir (1950-2019) Orri Páll Jóhannsson, fyrrverandi þingmaður VG sem reyndar er litli bróðir minn Francesca Albanese, mannréttindalögfræðingur hjá SÞ

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?

Kristjana Stefánsdóttir, Svavar Knútur Kristinsson, Magnús Eiríksson, Leonard Cohen, Ennio Morricone ...

Hver er þín eftirlætisbók?

Skáldsagan Hjartastaður eftir Steinunni Sigurðardóttur; ljóðabækurnar Einurð eftir Draumey Aradóttur og Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur, og auðvitað bæklingurinn Verk á vegi þínum sem Steinsteypufélag Íslands gaf út árið 2002

Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?

Cinema Paradiso

Hvert er þitt aðaláhugamál?

Að njóta félagsskapar fjölskyldu og vina, að leggja mitt af mörkum til að bæta lífsgæði okkar allra

Svör við kosningaprófinu:

Tinna Rut Jóhannsdóttir

Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Reykjavík er falleg, litrík og skemmtileg lítil stórborg; héðan er stutt í allar áttir og yndislega náttúru. En Reykjavík hefur líka alla burði til að verða enn betri; þar sem hlúð er mest að þeim sem minnst eiga; þar sem barnafjölskyldur og eldra fólk nýtur sjálfsagðrar þjónustu; þar sem við eigum öll öruggt heimili og getum komist ferða okkar.

Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Ég er heppin; ég þarf ekki á mikilli þjónustu að halda en sú sem ég nýt er til fyrirmyndar. En það er bara mín reynsla og ég veit að fjöldi fólks er ekki á sama máli; hvort sem um ræðir barnafjölskyldur, starfsfólk borgarinnar, eldri Reykvíkinga eða aðra.

Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. 4
  5. 5
Ath
Tinna Rut Jóhannsdóttir sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Enginn svarmöguleika á við, því ég vil tekjutengja skatta og gjöld. Í tilfellum efnaminnstu Reykvíkinganna ættu gjöldin því að lækka enn frekar, en hækka í tilfellum þeirra sem eiga meira. Ég vil fullnýta útsvarsprósentuna og ég vil jafnframt að lögum verði breytt á þann hátt að útsvar sé greitt af fjármagnstekjum.

Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Reykjavík er víðfem og dreifð fyrir ekki fjölmennari borg. Það veldur óþarfa umferðartöfum; gerir fólki og fyrirtækjum erfiðara fyrir að byggja upp og veita þjónustu og það flækir daglegt líf fólk. Áður en nýtt land er brotið og ný hverfi reist er því mikilvægt að þétta þar sem við á og skipuleggja fjölbreyttari og þjónustumiðaðri byggð.

Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Um stóru línurnar er skorið í lýðræðislegum kosningum á fjögurra ára fresti og mér finnst eðlilegt að þar sé heildarhugmyndafræðin undir. Það er hins vegar sjálfsagt að fleiri komi að málum þegar um útfærslur og endaniðurstöður er að ræða; sérstaklega sem snerta íbúa beint í þeirra daglega lífi.

Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Sveitarfélögum ætti að vera skylt að tryggja börnum leikskólavist að loknu fæðingarorlofi, en foreldrum verður að vera í sjálfsvald sett hvenær þeir kjósa að þiggja þjónustuna.

Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Heimgreiðslur viðhalda launamun kynjanna og eru skref afturábak í jafnréttismálum. Mikilvægt er að tryggja öllum börnum leikskólavist að fæðingarorlofi foreldra loknu, eða frá 12 mánaða aldri barns.

Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Foreldrar eiga að stytta vistunartíma vegna þess að það er þeim sjálfum og börnunum hollt og æskilegt; ekki af því að þeir fá afslátt af gjöldum. Þeim foreldrum sem ekki hafa tök eða efni á því að stytta vistunartíma á ekki að refsa með hærri gjöldum.

Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Reykjavík ætti að endurheimta forræði yfir rekstri húsnæðis skólabygginga og sjá um þrif, viðhald og rekstur sjálf, í stað þess að útvista. Reykjavíkurborg á einnig að tryggja leik- og grunnskólabörnum og starfsfólki skólanna hollan og ferskan kost.

Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Frístundastyrkir eru mikilvægt jöfnunartæki en aðferðafræðina við þá þarf að rýna reglulega svo tryggt sé að gjöld hækki ekki einfaldlega sem styrkjunum nemur. Reykjavík ætti jafnframt að endurskoða fyrirkomulag tónlistarnáms í borginni og tryggja að öll börn hafi aðgang að tónlistarnámi óháð efnahag foreldra.

Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Menningin er mæna samfélagsins; án ríks og fjölbreytts menningarlífs verður mannlífið í borginni snautt. Rannsóknir sýna að fé sem varið er til menningar og lista kemur margfalt til baka, bæði í efnahagsreikningnum en líka í bættri líðan og betra samfélagi.

Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Þetta er ekki álitamál, heldur einfaldlega mannréttindamál. Öll börn eiga rétt á öryggi, lífi og þroska og það er fullorðinna og stjórnvalda að tryggja það. Barn ræður ekki hverjum eða hvar það fæðist; barn á aldrei að gjalda aðstæðna sinna.

Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Tinna Rut Jóhannsdóttir sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Ég hreinlega get ekki svarað þessu; mín persónulega reynsla er sú að hvoru tveggja er fullnægjandi í mínu nærumhverfi, en það er ekki þar með sagt að annað gildi ekki um önnur svæði borgarinnar.

Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Það er mikilvægt að greiða leið lítilla fyrirtækja og nýsköpunar en fjárhagslegar ívilnanir þurfa að taka mið af þörfum og stöðu hvers fyrirtækis fyrir sig.

Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Að tilheyra samfélagi þýðir að við erum saman í þessu, að við hjálpumst að. Okkur ber siðferðisleg skylda til að tryggja að þau sem ekki hafa nóg, fái nóg. Málið er, að okkur líður öllum betur þegar okkur líður fleirum betur!

Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Sundlaugarmenningin er mikilvægt lýðheilsumál, bæði út frá heilsueflingu og -rækt, en einnig fyrirbyggjandi fyrirbæri sem kemur í veg fyrir einangrun og einmanaleika, eykur tengsl og eflir staðar- og hverfisanda. Sundlaugarmenningin styrkir samfélagið okkar og er stór þáttur í sjálfsmynd okkar.

Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Verðmætin undir vaskinum eru vanmetin auðlind; sorp er verðmæti og því betur sem við flokkum, því betur nýtum við verðmætin.

Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Það er mikilvægt að eldri Reykvíkingar fái þá þjónustu sem þeir þurfa og aðgang að örlugu félagsstarfi.

Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Frístundastyrkur getur verið í ýmsu formi en mikilvægast er að við tryggjum eldri Reykvíkingum aðgang að öflugu félagsstarfi og aðgang að þeirri þjónustu sem þeir kjósa.

Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Við þurfum að auka fjölbreytni í samgöngum og við þurfum að leysa umferðarhnútinn. Hvoru tveggja verður aðeins unnið í samvinnu allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Borgarlína er mikilvægur liður í bættum samgöngum og lífsgæðum á höfuðborgarsvæðinu öllu og það skiptir mjög miklu máli að sigla verkefninu í höfn.

Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Einn strætó með 25 farþegum tekur miklu minna pláss en 25 bílar með ökumanni einum í bíl. Það er augljóst að til þess að koma fleira fólki á milli staða hraðar, þarf að greiða leið ökutækja sem rúma fleiri farþega.

Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Með tilkomu Borgarlínu mun þörf og eftirspurn eftir bílastæðum minnka og það er óskynsamlegt að nota dýrt borgarland undir malbikuð bílastæði. Framtíðin eru fjölbreyttari ferðamátar.

Það eru of margir einkabílar í umferðinni.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Og við erum of fá um borð í hverjum bíl. Ein ástæðanna fyrir því að fólk á erfitt með að minnka notkun einkabílsins er sú að almenningssamgöngukerfið þjónar þörfum fólks ekki nægilega og því er mikilvægt að ljúka framkvæmd Borgarlínu og fjölga möguleikum á fjölbreyttari ferðamátum.

Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Já, það er rétt að takmarka aðgengi ógni það vatnsvernd. Þungaflutningar eiga til dæmis ekki heima á svæðinu og fara þarf varlega í skógrækt. Heiðmörk er mikilvægt svæði; bæði frá vatnsverndarsjónarmiðum en einnig lýðheilsu- og lífsgæðasjónarmiðum og það er til mikils að vinna að skapa jafnvægi þar milli. Og það á vel að vera hægt.

Hverfi Reykjavíkur njóta jafnræðis þegar kemur að þjónustu sem sveitarfélagið veitir.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Á milli hverfa er óumdeildur lýðfræðilegur munur, sem endurspeglast í þjónustustigi og þeirri athygli sem hverfum er veitt.

Festa á svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum í sessi til framtíðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Tinna Rut Jóhannsdóttir sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Ég kýs að svara spruningunni ekki því forsendur vantar. Það á ekki að festa neitt í sessi nema það hafi sannað sig og reynsla hafi skapast. Hvað Reykjavíkurleiðina varðar þá liggur sú reynsla ekki fyrir og það er ýmislegt sem þarf að rýna. Alla þjónustu þarf að hugsa bæði með þjónustuþega- og veitanda í huga og það er mikilvægt að hlusta á hvoru tveggja þegar kemur að því að rýna kerfið.

Koma þarf í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu Borgarlínu og þær þarf að ráðast í til hagsbóta fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu.

Hætta á við fyrirhuguð Miklubrautargöng.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Miklubrautargöng eru mikilvægur þáttur í að bæta umferðarflæði um austurborgina og þau á að byggja.

Einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Mjög mikilvægt Mikilvægir innviðir eiga undantekningalaust að vera í eigu og rekstri hins opinbera.

Reykjavíkurflugvöllur á að vera í Vatnsmýri til frambúðar.

  1. Tinna Rut Jóhannsdóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Reykjavíkurvöllur verður í Vatnsmýri þar til lausn er fundin en markmiðið á að vera að finna honum annan stað og tryggja sjúkraflug.

Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

Tinna Rut Jóhannsdóttir svaraði:

  • Almenningssamgöngur
  • Húsnæðismál
  • Málefni leik- og grunnskóla

Svona svarar Tinna Rut Jóhannsdóttir:
Húsnæðismálin eru lykilatriði; við eigum öll rétt á að búa okkur öruggt heimilil sem við ráðum við að reka; almenningssamgöngur eru lífsgæða- og kjaramál og leik- og grunnskólar eru grunnstoðir samfélagsins sem við verðum að hlúa að, efla og passa upp á.