Viktor Árnason (36. sæti - Reykjavík)

Fáein orð um þig.

Ég er námsmaður og líffræðingur á þrítugsaldri með brennandi áhuga á umhverfis- og jafnréttismálum, borgarskipulagi og sögu Íslands. Almennt reiði ég mig á Strætó þegar ég útrétta, og nýt þess að lesa á meðan á ferðunum stendur. Einnig sinni ég ýmsum tómstundum, er söngelskur og dansa mikið þegar tækifærið gefur sig, hef gaman af því að reyna við hin ýmsu hljóðfæri og þeysist um landið sjáist sjaldgæfir fuglar. Mest er mér annt um málefni úthverfa Reykjavíkur og íbúa þeirra.

Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?

2002

Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?

Þýskalandi

Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?

Ensku og þýsku

Við hvað starfar þú?

Ég starfa sem líffræðingur þar sem ég stunda rannsóknir og vöktun á ferskvatnsvistkerfum Íslands, sem eru jú okkar dýrmætasta eign.

Í hvers konar húsnæði býrð þú?

Ég bý eins og er í foreldrahúsum þar sem ég hef átt erfitt með að komast út á fasteignamarkaðinn.

Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?

Bakkalár gráða í líffræði frá Háskóla Íslands

Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?

Ég vil að Reykjavík blómstri og fái að endurvekja sína heildrænu fegurð sem höfuðstaður Íslendinga.

Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?

Sennilega Akureyrarbær eða Múlaþing.

Hver er þín fyrirmynd í pólitík?

Ég lít svo á að persónudýrkun á stjórnmálafólki sé almennt ekki af hinu góða, og reyni að forðast hana. Þó verð ég að viðurkenna að ég ber mikla virðingu fyrir hinum breska Zack Polanskii.

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?

Uppáhalds hljómsveitin mín hlýtur að vera Guided by Voices, frábær indie rokk sveit frá Bretlandi og Bandaríkjunum.

Hver er þín eftirlætisbók?

Meðal eftirlætisbóka minna er "Aðventa" eftir Gunnar Gunnarsson, ásamt "The Five People You Meet in Heaven", "Um tíman og vatnið" sem og "Skuggavíddin".

Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?

Af kvikmyndum hef ég undanfarið mest haft dálæti á Suður Kóreska leikstjóranum Park Chan-Wook, en uppáhalds myndin mín hlýtur að vera "Nausicaä of the valley of the wind" sökum gullfallegu náttúrumyndanna sem koma fyrir í henni.

Hvert er þitt aðaláhugamál?

Mitt aðal áhugamál er eflaust lestur, og hef ég sérstaklega gaman af Íslendingasögum, eða þá trommuleikur, en það er það hljóðfæri sem ég hef helst haldið mig við.

Svör við kosningaprófinu:

Viktor Árnason

Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Mjög mikilvægt Reykjavík er yndisleg, en að sjálfsögðu ekki fullkomin, borg sem hefur gríðarmarga kosti. Enda sækir stór og fjölbreyttur hópur fólks víðsvegar að, bæði innlent sem og erlent, að flytja hingað.

Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.

  1. Mjög ósammála
  2. Viktor Árnason
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Mjög mikilvægt Þótt Reykjavík beri á herðum sér ýmsa þjónustu fyrir allt Höfuðborgarsvæðið og standi sig mjög vel í innbænum, er mjög margt enn ábótavant í úthverfum borgarinnar. Sem hefur skilað af sér að við sem búum fjær frá miðju borgarinnar upplifum okkur stundum ekki sem jafningja annarra í borginni.

Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?

  1. 1
  2. 2
  3. 3
  4. 4
  5. 5
Ath
Viktor Árnason sleppti þessari fullyrðingu

Svona svarar Viktor Árnason:
Tekjuskatta þarf að lækka á allt verkafólk og hækka þarf fjármagnstekjuskatta, en það er varla borgarmál.

Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.

  1. Viktor Árnason
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Mjög mikilvægt Ný hverfi við jaðar borgarinnar munu bara auka þau vandamál sem nú þegar eru að þyngja þjónustugetu borgarinnar. Dreifð byggð er dýr!

Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Mjög mikilvægt Fulltrúalýðræði er hlaðið vandamálum, og bein þátttaka almennings í þeim ákvörðunum sem varða okkur öll er bara af hinu góða.

Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Öll börn hafa rétt á umönnun

Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.

  1. Mjög ósammála
  2. Viktor Árnason
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla

  1. Viktor Árnason
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Útvistun rektsturs hefur skapað gríðarlegt bákn á borginni í mörgum tilfellum með auknum kostnaði og möguleikum til spillingar og frændhygli, þetta er öxull þar sem má fara betur með almennafé.

Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Samfélag þar sem fólk (einkum börn) geta ræktað sjálfið og notið frístunda sinna er samfélag hraustra, sjálfsöruggra og heilbrigðra einstaklinga.

Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Reykjavíkurborg er ein helsta menningarmiðstöð Íslands og því ber að viðhalda.

Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Mjög mikilvægt Öll eigum við að hafa sama aðgengið að þjónust, hvort sem við erum fædd á Landspítalanum eða annars staðar, og hvort sem við erum rík eða fátæk, því við myndum öll íslenskt samfélag.

Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.

  1. Viktor Árnason
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Hér er úthverfaþjónustan því miður gríðarlega ábótavön, og oft ekki skafið svo vikum skiptir, t.d. í íbúðahverfum í Grafarholti eða á Kjalarnesi. Hér mætti t.d. takmarka útvistun verkefna og taka aftur upp fyrra kerfi.

Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum

  1. Mjög ósammála
  2. Viktor Árnason
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Fjárhagslegar ívilnanir til fyrirtækja vilja oftar en ekki skila sér í vasa þeirra sem fyrirtækin eiga. Ekki starfsfólksins sem halda þeim uppi.

Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Sund er heilsueflandi, og opnar dyr fólks að nágrönnum sínum. Lengri opnunartímar væru bara af hinu góða.

Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.

  1. Mjög ósammála
  2. Viktor Árnason
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Þó flokkun sorps geti verið flókið og fjölbreytt verkefni er flokkun enn ábótavön (sérstaklega af hálfu fyrirtækja og stofnanna, en einnig meðal margra íbúa).

Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Sveitarfélög ættu að greiða öllum frístundarstyrk :)

Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Bættar samgöngur á milli bæja Höfuðborgarsvæðisins eru bráðnauðsynlegar og aukin og betri þjónusta verður bara af hinu góða.

Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Við Borgarlínuna hef ég aðeins eina athugasemd og það er að það vanti fleiri leiðir! Þar stendur mér sérstaklega ofarlega í huga leið á milli úthverfa Höfuðborgarsvæðisins.

Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Einn strætó ber 30-50 manns og tekur einungis upp pláss á við 2 stóra bíla sem bera í mesta lagi 10 manns. Því er mikilvægt að forgangsraða skilvirkari samgöngumátum. Einnig auka strætóakreinar aðgengi neyðarbíla og geta bjargað lífum. Þetta er einfalt reiknidæmi.

Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Viktor Árnason
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Eftir því sem þéttleiki og aðgengi að þjónustum fer minnkandi er sjálfsagt að fjölga stæðum, en í miðbænum þar sem aðgengi með öllum samgöngumátum er hvað best, skapa stæði bara gráa og dapurlega bletti.

Það eru of margir einkabílar í umferðinni.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Viktor Árnason
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Bílar eru óumhverfisvænir, hættulegir, valda heyrnarskemmdum og hafa síðan um miðja síðustu öld, orðið u.þ.b. jafn mörgum að bana og Seinni Heimsstyrjöldin. Fækkun bíla, nema til nauðsynlegrar þjónustu og ferða til óaðgengilegra svæða er bráðnauðsynleg ætlum við okkur að eiga Reykjavík á 22. öldinni.

Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Viktor Árnason
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Hverfi Reykjavíkur njóta jafnræðis þegar kemur að þjónustu sem sveitarfélagið veitir.

  1. Viktor Árnason
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Líkt og áður hefur verið nefnt er þjónustuaðgengi þeirra sem búa í úthverfum ekki jafnt aðgengi þeirra sem búa í innbænum.

Festa á svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum í sessi til framtíðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Viktor Árnason sleppti þessari fullyrðingu

Koma þarf í veg fyrir fyrirhugaðar breytingar á skipulagi Suðurlandsbrautar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Viktor Árnason sleppti þessari fullyrðingu

Hætta á við fyrirhuguð Miklubrautargöng.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga
Ath
Viktor Árnason sleppti þessari fullyrðingu

Einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur

  1. Viktor Árnason
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Einkavæðing ríkiseigna hefur einungis skilað sér í eignauppsöfnun örfárra á kostnað almennings án nokkurar þjónustuaukningar, hið sama á við eignir sveitarfélaga, og hefur þessi stefna um sölu ríkiseigna sem fengið hefur að vera óáreitt síðan á 9 áratugnum gereyðilagt flestar grunnstoðir Vestræna heimsins.

Reykjavíkurflugvöllur á að vera í Vatnsmýri til frambúðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Viktor Árnason
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Viktor Árnason:
Flugvöllin ætti að færa, eingungis ef að hægt er að tryggja aðgengi allra landsmanna að neyðarþjónusut Landspítalans.

Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

Viktor Árnason svaraði:

  • Almenningssamgöngur
  • Húsnæðismál
  • Málefni leik- og grunnskóla

Svona svarar Viktor Árnason:
Ungt fólk, og tekjulágt, hefur lengi verið sniðgengt af stjórnvöldum hvað varðar húsnæðismál. Við eigum öll að hafa aðgengi að þaki yfir höfuðið án þess að þurfa að gerast leiguþrælar.