Bryndís Rut Logadóttir (6. sæti - Kópavogur)

Fáein orð um þig.

Ég er hjúkrunarfræðingur að mennt með diplómanám í stjórnun heilbrigðisstofnana og aðra í öldrunarþjónstu. Ég vinn sem þjónustustjóri í Lífsgæðakjarna og brenn fyrir málefnum aldraðra. Ég er gift og á þrjár dætur sem allar hafa alist upp í Kópavogi og nýtt þjónustu leik og grunnskóla sem og íþrótta og tímstundarstarf bæjarins. í frítímanum stunda jóga og útivist og samveru með vinum og fjölskyldu.

Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?

1979

Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?

Íslandi

Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?

Ensku og dönsu. Bjó sem unglingur í Danmörku og reyni að viðhalda henni með því að brydda uppá samræður á dönsku við dætur mínar, þeim til mis mikillar gleði.

Við hvað starfar þú?

Ég starfa sem þjónustustjóri á Sléttunni sem er lífsgæðakjarni á Hrafnistu Sléttuvegi.

Í hvers konar húsnæði býrð þú?

Einbýli

Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?

B.sc. í Hjúkrunarfræði og viðbótadiplómu í stjórnun í heilbrigðisþjónustu og aðra diplómu í öldrunarþjónust.

Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?

Síðan í byrjun árs 2026.

Hvernig viltu að þitt sveitarfélag verði eftir tíu ár?

Framúrskarandi leik og grunnskólar. Gott íþrótta og tómstundarstarf. Fjölbreytt og skilvirk þjónusta við eldri borgara. Skemmtilegur bæjarbragur með samskomusvæði þar sem eru reglulegar uppákomur og viðburðir. Skilvirkar samgöngur sem nýta má til þess að komast hratt og örugglega á milli bæjarhluta.

Ef þú yrðir að flytja í annað sveitarfélag, hvert þeirra yrði fyrir valinu?

Ég vil hvergi annarsstaðar búa en í Kópavogi. Sennilega færi ég bara til Evrópu ef ég þyfti að flytja eitthvert annað. Vonum að það þurfi ekki að koma til þess.

Hver er þín fyrirmynd í pólitík?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, að sjálfsögðu. Þvílík ofur kona. Hún hefur áorkað svakalega miklu á sínum langa stjórnmálaferli, algjör fyrirmynd. Einnig finnst mér Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alveg svakalega flott. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún náð langt. Hún er alltaf málefnaleg og með faglega framkomu.

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?

Skólahljómsveit Kópavogs. Á ekki orð yfir fagmennskunni og hæfileikunum sem þessi hljómsveit býr yfir.

Hver er þín eftirlætisbók?

Reisubók Guðríðar Símonardóttir er svaklega flott ritverk og áhugaverð.

Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?

Ég verð að segja Dumb and Dumber. Hef horft svo oft á hana og finnst hún alltaf jafn fyndin.

Hvert er þitt aðaláhugamál?

Á sumrin er það útivist. Hlaup, göngur og hverskyns útivera í bland við hreyfingu. Á veturna er það jóga og að prjóna. Annars hef ég mikinn áhuga á sagnfræði líka og finnst gaman að taka fyrir einhver tímabil og les þá bækur og horfi á sjónvarpsþætti sem fjalla um það tímabil.

Svör við kosningaprófinu:

Bryndís Rut Logadóttir

Það er gott að búa í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Kópavogur hefur alla burði til þess að vera frábært sveitafélag. Hér er frábært íþrótta og tómstundarstarf þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, dásamleg græn svæði og öll þjónusta aðgengileg. Stjórnsýslan þarf að styðja við fjölskyldur og fyrirtæki eins vel og hægt er að nýta fjármuni bæjarfélagsins með hag íbúa að leiðarljósi.

Ég er ánægð/ur með þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir mér.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi telur mikilvægt er að forgangsraða fjármunum þannig að þjónusta við íbúa sér í forgangi. Gegnsæi og aðgengi að upplýsingum mætti vera betri og biðlista eftir þjónustu styttri.

Hvernig ættu skattar og gjöld að vera í sveitarfélaginu miðað við stöðuna í dag?

  1. 1
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    2
  3. 3
  4. 4
  5. 5

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Leikskólagjöld eru of há og fasteignagjöldin hafa hækkað ótæpilega. Þessu vill Viðreisn breyta. Við viljum sanngjarnari gjaldtöku.

Þegar skipulögð er byggð í sveitarfélaginu ætti frekar að leggja áherslu á ný hverfi en þéttingu byggðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Bryndís Rut Logadóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Í skipulagsmálum þarf fyrst og fremst að taka tillit til núverandi byggðar. Samráð og samtal við íbúa er mikilvægt. Viðreisn vill leggja áherslu á uppbyggingu Vatnsendahvarfs og Vatnsendahlíðar á næstu kjörtímabilum sem og skynsamlega uppbyggingu innan eldri hverfa.

Fjölga ætti íbúakosningum svo að almenningur geti tekið meiri þátt í ákvörðunum í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn vill leggja áherslu á íbúasamráð og virkt samtal við bæjarbúa. Nýta betur verkefnið Okkar Kópavogur til þess að virkja bæjarbúa til ákvarðanatöku.

Sveitarfélögum ætti að vera skylt að lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá tólf mánaða aldri.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn telur ekki tímabært að lögfesta rétt barna til leikskólavistar frá 12 mánaða aldri. Viðreisn í Kópavogi vill mæta foreldrum þeirra sem ekki fá úthlutað plássi við 12 mánaða aldur með auknum niðurgreiðslum á öðrum dagvistunarúrræðum á meðan beðið er eftir leikskólaplássi.

Sveitarfélagið mitt ætti að bjóða heimgreiðslur til foreldra til að auðvelda þeim að vera heima með börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur og fram að leikskólavist.

  1. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Rannsóknir sýna að heimgreiðslur draga úr atvinnuþátttöku kvenna. Þetta þýðir að mikilvæg réttindi tapast eins og lífeyrisréttindi, veikindaréttur og réttur til fæðingarorlofs og þar með veikir það stöðu kvenna. Heimgreiðslur draga einnig á úr þrýstingnum á að byggja upp betra kerfi til lengri tíma.

Hvetja ætti foreldra til að stytta vistunartíma leikskólabarna gegn afslætti af gjöldum.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Treysta þarf foreldrum til þess að nýta leikskólavistun upp að því marki sem þörf er á hverju sinni. Gjöld eiga að vera sanngjörn. Greitt fyrir þá þjónustu sem nýtt er. Engin sanngirni er í því að sumir fái fría vistun á meðan aðrir borga himinhá gjöld eins og Kópavogsmódelið er byggt upp nú. Ekki allir eiga bakland eða kost á sveigjanlegum vinnutíma. Viðreisn í Kópavogi vill endurskoða gjaldskránna með sanngirni að leiðarljósi.

Sveitarfélagið ætti að beita sér fyrir frekari útvistun verkefna sinna við rekstur leik- og grunnskóla

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn er opin fyrir fjölbreyttu rekstrarformi í mennakerfinu.

Sveitarfélagið ætti að niðurgreiða íþrótta- og tómstundaiðkun barna meira en nú er gert.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Bryndís Rut Logadóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn vill nýta fjarmuni bæjarfélagsins með skynsemi. Ef svigrúm er til teljum við mikilvægt að nýta meira fé til þess að efla lýðheilsu bæjarbúa. Eins viljum við skoða hvort grundvöllur sé fyrir tekjutengdum frístundarstyrk til þess að auka aðgengi barna frá tekjulágum heimilum að íþrótta og tómstundarstarfi.

Verja ætti meira fé til að styðja menningarlíf í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn vill fjölbreytt og skemmtilegt menningarlíf í Kópavogi. Nýta þarf fjármagnið af skynsemi þannig að það nýtist sem best. Viðreisn vill skoða að koma á fót bæjarhátíð í Kópavogi til þess að efla bæjarbraginn í samstarfi við einkaaðila.

Hælisleitendur á barnsaldri ættu að fá sömu þjónustu í sveitarfélaginu og aðrir íbúar.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Öll börn búsett í Kópavogi eiga að fá þá þjónustu sem bæjarfélaginu ber að veita samkvæmt lögum.

Snjómokstur og götusópun er fullnægjandi í mínu sveitarfélagi.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Starfsfólk Kópavogsbæjar og áhaldahússins hafa staðið sig vel í að sinna snjómokstri og götusópun í bænum og eiga hrós skilið fyrir það.

Sveitarfélagið ætti að greiða leið nýrra fyrirtækja sem vilja hefja starfsemi á svæðinu, með fjárhagslegum ívilnunum

  1. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi telur að fjárhagslegar ívilnanir til fyrirtækja sé ekki hlutverk sveitafélagsins. Hinsvegar teljum við að mikilvægt sé að stytta boðleiðir einfalda ferla og gera þannig þjónustu við fyrirtækin skilvirkari.

Sveitarfélagið þarf að auka fjárhagsaðstoð við þá íbúa sem lifa undir fátæktarmörkum.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi telur skynsamlegra að nýta fjármunina til þess að tryggja hagkvæmara húsnæði fyrir tekjulægri hópa.

Lengja ætti opnunartíma sundlauga, þótt það kosti sveitarfélög fé.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi vill lengja opnunartíma sundlauganna um helgar og halda báðum sundlaugum opnum á almennum frídögum.

Sveitarfélög hafa gengið of langt í að skikka íbúa til að flokka sorp.

  1. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi styður núverandi flokkunarkerfi. Það hefur skilað góðum árangri og hvetur til umhverfisvitundar,.

Sveitarfélög ættu að verja meira fé í þjónustu við eldri borgara.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Bryndís Rut Logadóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Fyrst og fremst þarf að nýta það fé sem nú er varið í málaflokkinn með skilvirkni að leiðarljósi. Samþætting þjónustu og rétt þjónusta á réttum stað gæti skapað mikilvægt svigrúm til þess að bæta þjónustuna án þess að það kosti sveitafélagið meira.

Sveitarfélög ættu að greiða eldri borgurum frístundastyrk.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi vill koma á fót frístundarstyrk fyrir eldri borgara. Slíkur styrkur er hvetjandi til íþróttaiðkunar sem bætir bæði líkamlega og andlega heilsu og dregur úr einmanaleika.

Sveitarfélagið á að taka þátt í svokölluðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Mikilvægt er að halda áfram með þá uppbyggingu sem nú þegar er hafin með samgöngusáttmálanum. Það er til bóta fyrir bæði þá sem kjósa að nota einkabíl sem og þá sem velja almenningssamgöngur.

Ljúka á við Borgarlínu í þeirri mynd sem núverandi áform gera ráð fyrir.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Mikilvægt er að haldið sé áfram með þá vinnu sem er hafin við Borgarlínuna. Virkt samráð og upplýsingaflæði til íbúa þarf alltaf að vera til staðar.

Fækka á akreinum fyrir almenna bílaumferð til að búa til pláss fyrir sérakreinar fyrir strætó.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Mikilvægt er að pláss sé fyrir fjölbreyttan samgöngumáta. Ekki ætti að fækka akgreinu þar sem ekki er þörf á en mikilvægt er þó að greið leið sé fyrir almenningsvagna svo það sé raunverulegur valkostur fyrir íbúa.

Að minnsta kosti eitt bílastæði á að fylgja hverri íbúð í sveitarfélaginu.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög góð tillaga

Það eru of margir einkabílar í umferðinni.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Bryndís Rut Logadóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Núverandi innviðir bera ekki þá fjölgun einkabíla sem á sér stað. Þess vegna er mikilvægt að styðja þá uppbyggingu sem á sér stað með samgöngusáttmálanum. Fólk þarf að hafa raunverulegt val á að nýta aðra samgönguhætti kjósi það svo.

Það er rétt að takmarka aðgengi almennings að útivistarsvæðinu í Heiðmörk í þágu vatnsverndar.

  1. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Heiðmörk er mikilvægt útivistasvæði íbúa höfuðborgarsvæðisins og stuðlar að betri lýðheilsu. Hinsvegar þarf að takmarka umferða þungaflutninga um svæðið og gæta að vatnsbólinu.

Halda ætti óbreyttri stefnu í leikskólamálum í Kópavogi (Kópavogsmódelið).

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Með Kópavogsmódelinu hefur tekist að bæta starfsumhverfi og stöðuleika en huga þarf betur að sanngjarnari gjaldtöku.

Hugmyndir um uppbyggingu í Hamraborg eru vel heppnaðar.

  1. Mjög ósammála
  2. Bryndís Rut Logadóttir
    Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Viðreisn í Kópavogi fagnar uppbyggingu Hamraborgar. Hinsvegar teljum við að aðdragandi hennar og upplýsingagjöf til íbúa hafi verið ábótavant.

Spjaldtölvuvæðing í grunnskólum í Kópavogi hefur heppnast farsællega.

  1. Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Bryndís Rut Logadóttir
    Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Með tilkomu spjaldtölvuvæðingar opnuðust ný tækifæri á fjölbreyttari kennsluháttum.

Reisa ætti svokallaðan Lífsgæðakjarna í landi Gunnarshólma, sem er utan vaxtarmarka Kópavogs og innan vatnsverndarsvæðis.

  1. Bryndís Rut Logadóttir
    Mjög ósammála
  2. Frekar slæm tillaga
  3. Nokkuð góð tillaga
  4. Mjög góð tillaga

Svona svarar Bryndís Rut Logadóttir:
Svæðið er utan vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins og á vantsverndarsvæði. Viðreisn í Kópavogi vill leggja áherslu á frekari uppbyggingu innan þeirra kjarna sem nú þegar eru í Kópavogi. Við viljum fjölbreytt samfélag þar sem allir aldurshópar hafa tækifæri til að taka þátt og setja sitt mark á bæjarbraginn.

Hver eru mikilvægustu kosningamálin?

Bryndís Rut Logadóttir svaraði:

  • Bæjarbragur
  • Málefni eldri borgara
  • Samgöngumál