Finnur Ricart Andrason (1. sæti - Reykjavíkurkjördæmi norður)
Fáein orð um þig.
Ég er róttækur umhverfis- og loftslagsaktívisti og brenn fyrir hagsmunum ungs fólks og félagslegu réttlæti. Undanfarin ár hef ég setið í stjórn Ungra umhverfissinna, fyrst sem loftslagsfulltrúi og síðan sem forseti félagsins. Einnig hef ég lokið háskólanámi í Hollandi og aflað mér reynslu hjá ýmsum stofnunum og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Annars er ég bjartsýnn að eðlisfari, elska að njóta kyrrðar í náttúru Íslands og velti því mikið fyrir mér hvort ég komist einhvern tíma á húsnæðismarkaðinn.
Hvaða ár ert þú fædd / fæddur / fætt?
2002
Í hvaða sveitarfélagi býrð þú?
Reykjavíkurborg
Í hvaða landi ert þú fædd / fæddur / fætt?
Á Íslandi
Hvaða tungumál önnur en íslensku talar þú?
Ensku, frönsku
Við hvað starfar þú?
Sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Í hvers konar húsnæði býrð þú?
Í íbúð í fjölbýlishúsi með foreldrum mínum og systkinum
Hvert er hæsta menntunarstig sem þú hefur lokið?
Grunnám á háskólastigi (BSc í hnattrænum sjálfbærnivísindum)
Hvað hefur þú lengi verið í þínum flokki?
Ég tók fyrst þátt í flokkspólitísku starfi á vegum VG þann 25. október 2024.
Hvernig á Ísland að vera eftir 10 ár?
Réttlátt samfélag þar sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu, húsnæði og gæða menntun er tryggður fyrir alla. Stefna um efnahagslegan jöfnuð ræður för og sanngjarnt auðlindagjald er greitt fyrir afnot af auðlindum í eigu þjóðarinnar. Miklum árangri hefur verið náð í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurheimta vistkerfi og vernda náttúru Íslands.
Hver er þín fyrirmynd í pólitík?
Christiana Figueres
Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn eða hljómsveit?
Coldplay
Hver er þín eftirlætis bók?
Stóri bróðir eftir Skúla Sigurðsson
Hvaða kvikmynd heldurðu mest upp á?
The Lord of the Rings: The Return of the King
Hvert er eftirlætisáhugamálið þitt?
Hjólreiðar
Svör við kosningaprófinu:
Finnur Ricart Andrason
Íslenskt samfélag einkennist af réttlæti, sanngirni og jöfnum tækifærum.
- Finnur Ricart Andrason
Auka á vægi einkareksturs í heilbrigðiskerfinu.
- Finnur Ricart Andrason
Grunnskólar eiga að kenna börnum að lesa, skrifa og reikna og láta foreldra um að kenna samfélagsleg gildi.
- Finnur Ricart Andrason
Lágmarkslaun eiga að vera hærri en nú er.
- Finnur Ricart Andrason
Ríkið á að halda áfram að styðja og taka þátt í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið uppbyggingu Borgarlínu.
- Finnur Ricart Andrason
Ísland á að taka þátt í að fjármagna vopnakaup fyrir Úkraínumenn.
- Finnur Ricart Andrason
Draga ætti verulega úr kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
- Finnur Ricart Andrason
Eitt af meginmarkmiðum skattkerfisins á að vera að jafna kjör almennings.
- Finnur Ricart Andrason
Fyrirtæki sem nýta auðlindir landsins ættu að greiða meira til ríkisins fyrir afnot af þeim.
- Finnur Ricart Andrason
Íslensk stjórnvöld eiga að tala af meiri festu gegn hernaði Ísraela á Gaza.
- Finnur Ricart Andrason
Hækka ætti gjöld á mengunarvalda til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
- Finnur Ricart Andrason
Herða ætti lög eða reglur til að færri sæki hér um alþjóðlega vernd.
- Finnur Ricart Andrason
Íslenskt samfélag var öruggt og friðsælt en er það ekki lengur.
- Finnur Ricart Andrason
Komi til annars heimsfaraldurs eiga stjórnvöld að ganga skemmra í sóttvarnaaðgerðum en gert var í COVID-faraldrinum.
- Finnur Ricart Andrason
Stjórnvöld eiga að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að fólk geti áfram búið í Grindavík, sama hvað það kostar.
- Finnur Ricart Andrason
Hagsmunir náttúrunnar eiga að vega þyngra en fjárhagslegir hagsmunir þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um atvinnuuppbyggingu.
- Finnur Ricart Andrason
Efna á til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
- Finnur Ricart Andrason
Innheimta á veggjöld í auknum mæli til að fjármagna nýjar vegaframkvæmdir.
- Finnur Ricart Andrason
Það er nauðsynlegt að virkja meira á Íslandi.
- Finnur Ricart Andrason
Slaka ætti á regluverki og kröfum í byggingariðnaði til að flýta húsnæðisuppbyggingu.
- Finnur Ricart Andrason
Alþingi á að vinna markvisst að endurskoðun stjórnarskrárinnar á næsta kjörtímabili.
- Finnur Ricart Andrason
Hvernig ættu skattar og gjöld á fyrirtæki að vera, miðað við í dag?
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Svona svarar Finnur Ricart Andrason:
Ég er ekki hlynntur hækkun skatta og gjalda á lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru mikilvæg fyrir atvinnu og samfélagið. Hins vegar er ég mjög hlynntur hækkun skatta á stórfyrirtæki sem ekki leggja ekki nærri nóg til samfélagsins þrátt fyrir afnot af auðlindum þjóðarinnar.
Hvernig ættu skattar á tekjur almennings að vera, miðað við skattheimtu í dag?
- 1
- 2
- Finnur Ricart Andrason3
- 4
- 5
Miðað við núgildandi stefnu, hversu miklu eiga stjórnvöld að kosta til þess að fólk sem hingað flytur aðlagist samfélaginu?
- 1
- 2
- 3
- Finnur Ricart Andrason4
- 5
Svona svarar Finnur Ricart Andrason:
Orðalag skiptir máli og vil ég frekar að talað sé um inngildingu frekar en að fólk sem flytji til Íslands þurfi að aðlagast samfélaginu.
Hversu langt ættu stjórnvöld að ganga í flutningi opinberra starfa til landsbyggðanna, miðað við stefnuna í dag?
- 1
- 2
- 3
- Finnur Ricart Andrason4
- 5
Hversu mikið frjálsræði ætti að vera í áfengissölu í verslunum, miðað við stöðuna í dag?
- 1
- 2
- Finnur Ricart Andrason3
- 4
- 5
Hver eru mikilvægustu kosningamálin?
Finnur Ricart Andrason svaraði:
- Húsnæðismál
- Málefni ungs fólks
- Umhverfis- og loftslagsmál